Nýtt kynbótamat

  • 26. júní 2026
  • Fréttir

Þráinn frá Flagbjarnarholti stendur efstur til heiðursverðlauna á Landsmóti á Hólum samkvæmt nýju kynbótamati

Nýtt kynbótamat var reiknað í morgun

Nýtt kynbótamat var reiknað fyrir íslenska hestinn um helgina og var það birt nú í morgun í WorldFeng.

Þegar Landsmót er haldið er nýtt kynbótamat iðulega reiknað að loknum vordómum á Íslandi til að hafa nýjar niðurstöður til að byggja röðun afkvæmahesta á. Alls bættust við frá vorinu 1.795 dómar frá sex löndum. Kynbótamatið byggir nú á tæplega 40.000 fullnaðardómum úr kynbótadómi og rúmlega 172.000 keppnisdómum. Það er því ljóst að árlega bætast við verðmætar upplýsingar sem styrkja grunn kynbótamatsins.
Hvað stóðhestana varðar eiga nú þátttökurétt í afkvæmasýningum á Landsmóti á Hólum fjórtán hestar; þrír til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi og ellefu til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi. Þeir eru:

Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi:
 Þráinn frá Flagbjarnarholti
 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
 Hreyfill frá Vorsabæ II

Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi:
 Hannibal frá Þúfum
 Skarpur frá Kýrholti
 Veigar frá Skipaskaga
 Pensill frá Hvolsvelli
 Útherji frá Blesastöðum 1A
 Safír frá Mosfellsbæ
 Kjuði frá Dýrfinnustöðum
 Rauðskeggur frá Kjarnholtum I
 Vökull frá Efri-Brú
 Dofri frá Sauðárkróki
 Vákur frá Vatnsenda

Ræktendum og eigendum hestanna er óskað innilega til hamingju með frábæran árangur og merkan áfanga. Haft verður samband við eigendur hestanna á næstu dögum til að skipuleggja afkvæmasýningar hestanna á Landsmóti.
Á föstudag var nýtt kynbótamat birt í WorldFeng en svo uppgötvaðist að keppnisdómar voru ekki rétt meðhöndlaðir í matinu. Þetta hafði áhrif á kynbótamat hrossa fyrir keppniseiginleikana en einnig aðra eiginleika. Því var ný kynbótamatskeyrsla sett í gang um helgina og rétt kynbótamat birt í WorldFeng í morgun.

Þorvaldur Kristjánsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link