Þriðja spurning í Jólameistara Eiðfaxa

  • 17. desember 2024
  • Fréttir
Þriðja spurning í spurningakeppni milli liða Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum

Það styttist óðum í jólin og því ekki seinna vænna en að hefja leika í Jólameistara Eiðfaxa sem er spurningakeppni þar sem lið Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum etja kappi saman. Munu liðin svara hinum ýmsu spurningum tengdum jólunum eða Meistaradeildinni.

Næstu daga munum við birta eina spurningu í einum og verður spennandi að sjá hvaða lið stendur uppi sem Jólameistarinn 2024.

Komið er að næstu spurningu en eftir tvær spurningar leiða lið Sumarliðabæjar og Top Reiter með 2 stig. Næst er spurt: Hver sigraði keppni í fimmgangi í Meistaradeild árið 2001? Tvö stig fengust fyrir rétt svar, eitt fyrir réttan knapa og eitt fyrir réttan hest.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar