Hestamannafélagið Jökull Þriðja vetrarmót og páskatölt Jökuls og Góu

  • 9. apríl 2025
  • Tilkynning
Keppt verður í tölti T7 og T3

Þriðju vetrarleikar og páskatölt hestamannafélagsins Jökuls og Góu verður haldið í reiðhöllinni á Flúðum laugardaginn 19. apríl. Mótið hefst kl. 11.30 og verður keppt í tölti T3 í þremur flokkum :

  • Opnum flokk
  • 2 flokk
  • Ungmennaflokk

Keppt verður í T7 í eftirfarandi flokkum:

  • 2 flokk
  • Unglingaflokk
  • Barnaflokk

Einnig er boðið upp á pollaflokk og er frítt og skráning á staðnum. Unglingar og börn sem vilja frekar keppa í T3 mega skrá sig upp um flokk (ungmennaflokk).

Dagskrá:
Kl. 11.00 Húsið opnar
Kl. 11.30 Pollaflokkur
Kl. 12.00 Forkeppni –> Börn T7, unglingar T7, 2 flokk T7, ungmenni T3, 2 flokk T3, opinn flokk T3
–> Úrslit í sömu röð

Mótanefnd áskilur sér að fella niður flokka ef næg þátttaka næst ekki. Skráning hefst 1. apríl og lýkur 17. apríl á sportfengur.com Skráningagjaldið er 4.000 krónur í alla flokka. Mótið er opið öllum. Eftir úrslit í hverjum flokki verða verðlaunað stigahæstu knapa vetrarins hjá hestamannafélaginu Jökli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar