Þýska meistaramótið í beinni

  • 23. júlí 2021
  • Fréttir

Á Hirtenhof sem staðsett er nærri Frankfurt mun þýska meistaramótið (Deutsche Islandpferde-Meisterschaft / DIM), fara fram en það hefst þann 4.ágúst. Um fimm daga viðuburð er að ræða sem enginn hestaáhugamaður vill missa af. Fylgstu með í beinni útsendingu þegar meistarar verða krýndir í hinum ýmsu greinum.

Á meðal hrossa sem taka þátt eru fyrrum heimsmeistarar líkt og: Glæsir von Gut Wertheim, Gloria frá Skúfslæk, Dynfari frá Steinnesi, Losti frá Ekru, Kóngur frá Lækjamóti, Óðinn vom Habichtswald, Þokki frá Efstu-Grund, Spölur frá Njarðvík, Svaði frá Hólum and Fylkir vom Kranichtal. Þá má finna þar Landsmótssigurvegarana Konsert frá Hofi og Nóa frá Stóra-Hofi auk fleiri nafntogaðra hrossa og má þar nefna Byr frá Strandarhjáleigu, Dag vom Forstwald, Besta frá Upphafi, Gletting vom Kronshof, Ísöld frá Strandarhjáleigu, Salvör vom Lindenhof, Styrla fra Skarstad, Baldi frá Feti, Heljar frá Stóra-Hofi and Ísleifur vom Lipperthof.

Eins og áður segir byrja herlegheitin miðvikudaginn 4.ágúst og hægt er að kaupa beina  útsendingu að mótinu í heild sinni sem stendur fram til 8.ágúst á 49.99 evrur.

Hægt er að kaupa sér aðgang á www.digitaldim.de. En hægt er að horfa á mótið hvar og hvenær sem er út árið.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link