Tilboð á gistingu í Skógarhólum

  • 21. apríl 2020
  • Fréttir

Skógarhólar eru paradís fyrir hestamenn mynd: Gissur Guðjónsson

Stjórn LH hefur ákveðið að bjóða félögum í hestamannafélögum, gistingu á Skógarhólum á sérstökum afsláttarkjörum sumarið 2020. Vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu viljum við hvetja hestamenn til að ferðast innanlands í sumar á hestunum sínum.

Verðskrá fyrir félaga í Landssambandi hestamannafélaga:

  • Gisting: 3.300 kr.
  • Girðingagjald: kr. 350
  • Heyrúlla: 12.500 kr.
  • Tjaldstæði: 1.000 kr.
  • Aðstöðugjald fyrir eldhús og skála (nestisstopp) 350 kr.

Þetta er einn af fjölmörgu ávinningum þess að vera félagi í hestamannafélagi og tilheyra samfélagi hestamanna.

LH hvetur hestamenn til að nýta sér aðstöðuna á Skógarhólum og hinar frábæru reiðleiðir á Þingvöllum í sumar. Ferðumst innanlands.

Tekið er á mótum pöntunum á netfangið [email protected]
Meira um Skógarhóla á heimasíðu LH

Ert þú í hestamannafélagi?

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link