Svíþjóð Tilnefndir til kynbótaknapa ársins í Svíþjóð

  • 2. október 2023
  • Fréttir
Uppskeruhátíð Svía fer fram 11. - 12. nóvember í Uppsala

Haustfundur sænska landsambandsins fer fram 11. – 12. nóvember á Clarion Hotel Gillet í Uppsala í Svíþjóð. Er þetta Uppskeruhátíð Svía og á laugardeginum eru ýmsir fyrirlestrar í boði frá kl. 10 til 18:00.  Um kvöldið er síðan afhent verðlaun fyrir knapa og ræktanda ársins.

Á sunnudeginum er síðan komið að haustfundi ræktunarsamtökum Svía (SIF Avel). Hefur verið gefið út hvaða fimm knapa þau tilnefna til kynbótaknapa ársins hjá samtökunum. Verða þau verðlaunuð ásamt hæst dæmdu hrossum ársins og afkvæmaverðlaun verða veitt.

Hægt er að sjá nánar um þetta HÉR

Tilnefndir til kynbótaknapa ársins:

Anne-Marie Röst
Erlingur Erlingsson
Eyvindur Mandal Hreggviðsson
Máni Hilmarsson
Vignir Jónasson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link