Uppboðssæti í 150m og gæðingaskeiði Meistaradeildar

  • 27. mars 2024
  • Fréttir
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti bæði í gæðingaskeiði og 150 m skeiði sem haldið verður á Brávöllum, Selfossi laugardaginn 30. mars næstkomandi klukkan 14:00.
Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 28. mars kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.

​Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
„1.6 Einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt í hverri grein sem aukaknapi í deildinni. Hann vinnur sér ekki inn stig nema ef knapi sé í liði í deildinni þá safnar hann stigum í einstaklingskeppninni. Þátttökugjald er 50.000 kr án VSK, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi kl 12 á hádegi á skráningardegi gilda. Meðan að tilboð eru að berast inn þá upplýsir stjórn bjóðendur ef að hærra tilboð en það sem er hæst hverju sinni berst. Ef fleiri en eitt tilboð eru jöfn þegar að skráningu lýkur þá öðlast þau öll keppnisrétt. Stjórn skal samþykkja knapa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar