Upplýsingasíða BÍ um kórónuveiruna

  • 26. mars 2020
  • Fréttir

Það er óhætt að segja að það reyni á landsmenn þessa dagana og því mikilvægt að hafa helstu og bestu upplýsingar samanteknar og aðgengilegar. Í ljósi þessarar stöðu hefur verið sett á laggirnar viðbragsteymi á vegum bænda sem mun vakta alla framvindu í þessum erfiðu aðstæðum og hafa bestu upplýsingar á hverjum tíma aðgengilegar.

Þannig munu Bændasamtök Íslands fylgjast náið með þróun mála vegna áhrifa kórónuveirunnar á landbúnað og starfsemi bænda.

Viðbragðsteymið hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir bænda, vera í samskiptum við stjórnvöld, koma á afleysingaþjónustu og miðla upplýsingum um það sem varðar landbúnað.

Ég vil því benda fólki á upplýsingarsíðu Bændasamtaka Íslands þar sem ávallt verða nýjustu upplýsingar varðandi það sem snýr að bændum og þeim sem halda hross.

Með góðri kveðju

Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar