Vantar hestamenn í rýnihóp
Við erum nemendur í meistaranámi við Háskóla Íslands og okkur vantar hestamenn í skemmtilegt spjall um hestavörur. Tilgangurinn er að ræða upplifun og ímynd á vörum tengdum hestamennsku. Þetta er stutt spjall, tæp klukkustund, sem fer fram í Háaleitisskóla (áður Hvassaleitisskóli) Stóragerði 1, 105 Reykjavík, sunnudaginn 8.nóvember kl 16. Allir sem mæta fá höfuðleður fyrir þátttökuna. Áhugasamir vinsamlegast sendið póst á [email protected] með upplýsingum um aldur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands