Vetrarmót Loga og Trausta
Fyrsta vetrarmót hestamannafélaganna Loga og Trausta verður haldið laugardaginn 18. febrúar kl. 14 að Hrísholti:
„Keppt verður í barna-unglinga- fullorðins og unghrossaflokkum. Þær reglur gilda í unghrossaflokki að knapi getur mætt með nýtt hross á hvert mót, en heldur samt sínum stigum þ.e. knapinn safnar stigum óháð hrossum. Unghrossaflokkurinn er ætlaður hrossum fæddum 2006 og 2007. Í unghrossaflokki þarf hestur ekki að vera í eigu félagsmanns.
Vert er að minna á þær reglur sem gilda um keppnisrétt knapa og hrossa á vetramótum félagsins. Knapi verður að vera félagsmaður í Loga eða Trausta og hestur sem keppt er á, minnst 50% í eigu félaga.
Nánar er hægt að lesa um reglur félagsins á heimasíðu Loga undir reglur móta,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum en næstu vetrarmót hestamannafélaganna Loga og Trausta verða haldin 17. mars og 14. apríl.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH