Viðurkenningar FT á Íslandsmóti

  • 15. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fréttatilkynning frá formanni Félags tamningamanna.

Á Íslandsmótinu í Spretti voru veitt fjórum knöpum viðurkenning fyrir góða reiðmennsku. Formaður félags tamingamanna, Súsanna Sand, veitti þessar viðurkenningar.

„Á Íslandsmóti í hestaíþróttum fylgdust fulltrúar félags tamningamanna vel með. Er okkur sönn ánægja að segja frá því að svo margar glæsilegar sýningar voru í forkeppninni að við stóðum frammi fyrir lúxusvandamáli, að velja úr, reiðmennskan í mikilli framför. Áfram ísland!

Veittar voru 4 viðurkenningar, þar af 3 fjaðursýningar, FT fjöðrin stendur fyrir einstaka sýningu og svo reiðmennskuverðlaun FT sem standa saman af mörgum þáttum íslandsmótsins.

FT fjöðrina fékk Konráð Valur Sveinsson fyrir magnaða sýningu sína í gæðingaskeiði ungmenna á Kjarki sínum Árbæjarhjáleigu. Jákvæð mikil orka og kraftur undir ótrúlega næmri stjórn, léttleiki, lipurð og gleði skín af þeim félögum og vinum:)

FT fjöður fékk Eyrún Ýr Pálsdóttir fyrir frábært samspil hennar og Hrannars Flugumýri í 5gangi. Fallegt samband, útgeislun, mýkt, léttleiki og lipurð i fyrirrúmi. Eyrún laðar framm með afslappaðri, einbeittri en óþvingaðri reiðmennsku sinni stolt og kátínu í Hrannari.

FT fjöður fékk einnig Sigurbjörn Bárðarson fyrir einstaka reiðmennsku sína í 150m skeiði á aldna höfðingjanum Óðni Búðardal 22 vetra! Óðinn fer glaður í básinn, þar bíður hann rólegur með Sigurbirni sem situr í kappreiðaásetu þar til þeir hlaupa á fullu stökki út, réttir Sigurbjörn sig upp í sæti og varla tekur í taum. Fóru þeir á besta tíma ársins.
Til hamingju fjaðurhafar:)

Reiðmennskuverðlaun FT fær Gústaf Ásgeir Hinriksson fyrir frammúrskarandi reiðmennsku og fjölhæfni. Hann er einstaklega prúður, kurteis og jákvæður í framkomu við starfsmenn og aðra á mótinu. Gústaf er einbeittur, yfirvegaður og sanngjarn í reiðmennsku sinni. Gaman að fylgjast með honum hita upp af mikilli ró, og svo fer hann aftur á upphitunarvöll eftir sýningar sínar að slaka hesti sínum niður og jafna öndun.
Hestarnir áverkalausir. Flott fyrirmynd Gústaf Ásgeir aðeins 19 ára gamall.“

Til hamingju öll.
Kv. Súsanna Sand, formaður félags tamningamanna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link