Vilji þingfulltrúa að skipað sé í fjölbreyttari rýnihóp
Mynd tekin á Landsþingi LH s.l. október
Á ný afstöðnu landsþingi kynnti Ragnhildur H. Magnúsdóttir, verkefnastjóri verkefnisins, fyrir þingfulltrúum hvaða sjö einstaklingar sætu í hópnum og hvaða vinna væri framundan hjá þeim hópi. Vakti það athygli þingfulltrúa að af þessum sjö einstaklingum eru fjórir úr hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu, einn frá Sleipni og einn úr Skagfirðingi.
Þótti sú skipan til marks um það að að jafnræði milli landshluta innan hópsins væri ekki tryggt. Áhugavert er t.d. að enginn sé frá hestamannafélaginu Geysi, þar sem Landsmót á Hellu, umráðasvæði félagsins, hefur oft farið fram. Einnig væri athyglisvert að enginn fulltrúi sé úr röðum félags hrossabænda sem er einn af eigendum Landsmóts ehf.
Í kjölfar þessa skapaðist umræða í landsmótsnefnd á þinginu og lögð var fram tillaga sem var samþykkt, þess eðlis að stjórn LH myndi bæta við fleiri fulltrúum í starfshópinn til að tryggja að fjölbreyttari sjónarmið fengju rými í þeim störfum vinnuhópsins sem framundan eru.
Að þinginu loknu hefur þessi umræða áfram verið á lofti og því sendi blaðamaður fyrirspurn til LH í síðustu viku um það hvort nýjum fulltrúum hafi verið bætt í hópinn. Ekki enn hefur borist svar frá Landssambandinu. Ljóst þykir að áður en sú vinna hefst að móta framtíð Landsmóts hestamanna þarf að tryggja að fulltrúar sem flestra sjónarmiða sitji í hópnum sem falið er að móta þessa framtíð.
Margareterhof er selt
Ný staðsetning á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna árið 2027
Meistaradeild ungmenna í beinni á EiðfaxaTV