Vorsýning kynbótahrossa – síðasti skráningardagur

  • 17. apríl 2012
  • Fréttir
Vorsýning kynbótahrossa – síðasti skráningardagur

Í dag, þriðjudaginn 17. apríl, lýkur skráningu á fyrstu kynbótasýningu ársins sem er Vorsýning kynbótahrossa á Sauðárkróki sem fram fer 20. til 21. apríl .  Tekið er á móti skráningum á Leiðbeiningamiðstöðinni 455-7100 / [email protected].

 
Kynbótasýningin er liður í dagskrá Hestadaga í Skagafirði sem bera yfirskriftina Tekið til kostanna. Laugardaginn 21. apríl verður yfirlitssýning kynbótahrossa (hefst kl.10:00), reiðkennslusýning Hólaskóla – “Frá feti upp í flugaskeið” (hefst kl: 13:00), opið á Sögusetri íslenska hestsins á Hólum milli 16:00 og 18:00 og síðan verður stórsýningin Tekið til kostanna í reiðhöllinni Svaðastöðum (kl:20:00) og í framhaldinu dansleikur á Mælifelli.  
 
Dagskrá Tekið til kostanna verður kynnt nánar næstu daga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link