Worldwide Virtual Winner – Háklassakeppni á netinu
Julie Christiansen er einn af þeim knöpum sem taka þátt í mótinu!
Covid-19 hefur orðið til þess að margir knapar og reiðkennarar hafa nýtt sér tæknina til þess að koma allskyns efni á framfæri og þá hafa nú þegar mót í gegnum netið farið fram. Worldwide Virtual Winner er mótaröð sem hefur nú verið sett á laggirnar en þær keppnisgreinar sem eru í boði eru T1 (tölt), T2 (slaktaumatölt), V1 (fjórgangur) og F1 (fimmgangur).
Það er Johan Häggberg sem stendur fyrir mótaröðinni og hefur fengið í lið með sér alþjóðlega dómara í íþróttakeppni þau Steindór Guðmundsson, Jens Füchtenschnieder, Huldu Geirsdóttur, Peter Häggberg, Rune Svendsen og Sophie Kovac.
Til þess að taka þátt verða knapar að hafa hlotið einkunnina 7,0 eða hærra í einhverri keppnisgrein á alþjóðlegu (WR) móti. Eiðfaxi heyrði í Johan á dögunum og spurði hann út í hugmyndina á bak við mótið og fleira. „Upphaflega ætluðum við að halda þessi keppni eingöngu í Svíþjóð en hugsuðum svo lengra og tókum ákvörðun um að hafa hana alþjóðlega. Meira og minna öllum mótum hefur verið frestað og ekkert Norðurlandamót er í ár og ekkert mið-Evrópumót svo dæmi séu tekin. Það hlýtur því að vera mikill fjöldi knapa sem er kominn með hestanna í toppform en hafa að engum mótum að stefna. Við tókum okkur því saman nokkrir dómarar og fórum af stað með þessa keppni og vonum að fólki líki vel.“
Fyrirkomulagið verður með því móti að knapar senda inn upptökur og dómaranir dæma sýningarnar allir á sama tíma þ.e.a.s. þeir fylgjast með útsendingunni og fá einungis að sjá hverja sýningu einu sinni og gefa einkunn í kjölfarið.
Nú þegar hafa þekktir knapar boðað komu sína og er hægt að fylgjast með inn á facebook síðu viðburðarins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH