Yfirlitssýning í Víðidal á morgun

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Yfirlitssýning í Víðidal á morgun

Yfirlitssýning kynbótahrossa í Víðidal fer fram miðvikudaginn 18. maí og hefst stundvíslega kl. 10. Röð flokka verður eftirfarandi:

7v. og eldri hryssur.
6v. hryssur.
Hádegishlé (áætl. kl. 12:00-13:00).
5v. hryssur.
5v. stóðhestar.
6v. stóðhestar.
7v. og eldri stóðhestar.

Verðlaun eru veitt við lok hvers flokks, þrjú efstu hross í flokki, og áætluð sýningarlok á bilinu kl. 16-17. Ath. að hollaröð yfirlitssýningar verður birt svo fljótt sem verða má, eftir að dómum lýkur, að kvöldi þriðjudagsins 17. maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Búnaðarsambandi Suðurlands.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link