15 hross komu til dóms á síðustu kynbótasýningu ársins
Engjarós frá Engjavatni mynd: Aðsend
Síðasta kynbótasýning ársins fór fram í Sviss um síðustu helgi dagana 25.-26.september.
Alls voru 15 hross sýnd á sýningunni og þar af 13 í fullnaðardómi en tvö komu eingöng til sköpulagsdóms. Tvö hross hlutu 8,00 eða hærra í aðaleinkunn.
Hæst dæmda hross sýningarinnar var átta vetra gömul hryssa, Engjarós frá Engjavatni, sýnandi á henni var Lisa Staubli. Engjarós er undan Spuna frá Vesturkoti og Gerðu frá Gerðum. Gerða hefur gert það gott í ræktun en af 14 afkvæmum sem eru á tamningaaldri hafa 9 þeirra komið til kynbótadóms og 8 þeirra hlotið 1.verðlaun. Engjarós hlaut 8,17 fyrir sköpulag, 8,25 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,22.
Greifi fra Søgård hlaut einnig 1.verðlaun er þar er á ferðinni fimm vetra gamall stóðhestur undan Grím frá Efsta-Seli og Silju fran Söderasen. Sýnandi á honum var Agnar Snorri Stefánsson en eigandi er Spieler Roman.
Öll hross á sýningunni
| Aldur | Nafn | Uppruni | Knapi | Sköpulag | Hæfileikar | Ae. | Ae. án skeiðs |
| 8 | Engjarós | Engjavatni | Staubli Lisa | 8,17 | 8,25 | 8,22 | 8,19 |
| 5 | Greifi | Søgård | Agnar Snorri Stefánsson | 8,4 | 7,81 | 8,02 | 8,05 |
| 14 | Laufey | Seljabrekku | Agnar Snorri Stefánsson | 7,91 | 7,93 | 7,92 | 7,92 |
| 7 | Silja | Skeiðvöllum | Agnar Snorri Stefánsson | 8,05 | 7,73 | 7,84 | 7,93 |
| 10 | Norma | Tjenergården | Helgi Leifur Sigmarsson | 7,94 | 7,78 | 7,83 | 8,16 |
| 10 | Gambur | Engjavatni | Staubli Mara Daniella | 7,88 | 7,72 | 7,78 | 8,1 |
| 11 | Viðja | Feti | Staubli Lisa | 8,11 | 7,6 | 7,78 | 8,08 |
| 6 | Meyja | Kronshof | Agnar Snorri Stefánsson | 8,16 | 7,51 | 7,74 | 8,03 |
| 9 | Hrafnhetta | Freyelhof | Agnar Snorri Stefánsson | 7,95 | 7,5 | 7,66 | 7,66 |
| 5 | Stelpa | von der Lieburg | Agnar Snorri Stefánsson | 7,83 | 7,47 | 7,6 | 7,59 |
| 8 | Sylgja | Engjavatni | Staubli Mara Daniella | 7,72 | 7,32 | 7,46 | 7,73 |
| 14 | Pyngja | Hæli | Helgi Leifur Sigmarsson | 7,66 | 7,18 | 7,35 | 7,61 |
| 9 | Mánaglóð | Kálfholti | Helgi Leifur Sigmarsson | 7,72 | 7,05 | 7,28 | 7,35 |
| 7 | Hlynur | von Engjavatni | Staubli Lisa | 8,22 | |||
| 5 | Hvönn | von Engjavatni | Staubli Mara Daniella | 7,88 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH