Landsamband hestamanna Geysir hlaut Æskulýðsbikar LH

  • 31. október 2026
  • Fréttir
Hinn eftirsótti Æskulýðsbikar Landssambands hestamannafélaga (LH) er afhentur því félagi sem skarað hefur þótt fram úr í æskulýðsstarfi á árinu og hefur verið afhentur frá árinu 1996.

Valið byggir á ársskýrslum æskulýðsnefnda félaganna, sem sendar eru inn til æskulýðsnefndar LH á haustin og hefur nefndin það verkefni að velja handhafa bikarsins og byggist valið á innsendum skýrslum.

Þetta er ein sú æðsta viðurkenning sem hægt er að hlotnast fyrir æskulýðsstarf félaganna og metnaðarfullt æskulýðsstarf skiptir gríðarlegu máli fyrir framtíð greinarinnar því þaðan kemur framtíðar grasrót félaganna. Æskulýðsstarfið er lang mikilvægasta starf hvers félags.

Valið byggir á innsendum ársskýrslum æskulýðsnefnda félaganna. 17 skýrslur bárust í ár og hvetjum við félögin til að senda inn skýrslur því þær gefa okkur í æskulýðsnefnd LH upplýsingar um starf félaganna, ásamt því að þær eru mikilvægur hugmyndasjóður fyrir önnur félög.

Í ár var það hestamannafélagið Geysir sem hlaut bikarinn.

„Það er ánægjulegt að sjá, að áfram halda félögin að stíga skref í þá átt að líta á sig sem íþróttafélög og bjóða upp á markvissar æfingar á heilsárs grundvelli. Nefndin telur það skref í rétta átt og að með þeirri stefnu muni greinin vaxa, vera samkeppnishæfari og dafni til framtíðar. – sleppa mögulega,“ sagði Linda Björgvinsdóttir þegar hún athenti bikarinn á Landsþinginu í gær.

„Mikill metnaður hefur verið lagður í æskulýðsstarf þess félags sem standa þótti upp úr í ár. Félagið leitar eftir því að mæta öllum aldri, áhuga og reynslu og býður upp fjölbreytt námskeið allt frá fyrstu kynnum af hestamennskunni, yfir í markvissa þjálfun fyrir lengra komna. Félagið leggur mikið upp úr því að skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að efla færni sína og sjálfstraust, njóta samveru við hestinn og leggur áherslu á tenglsamyndun milli barna og ungmenna sem deila þessum sameiginlega áhuga á hestamennskunni.“

„Félagið bauð upp á mjög fjölbreytt námskeiðsúrval. Það fór í Æskulýðsferðir, Fjölskyldureiðtúr og Hestaferð – Stóð fyrir hópefli með fótboltaleikjum og hobbyhestadegi, þar sem ungir sem aldnir spreyttu sig í þrautabraut. Þau stóðu fyrir fyrirlestri um andlegan styrk knapa í keppni og þjálfun, ásamt því að standa fyrir stórglæsilegri Æskulýðssýningu 1. Maí, þar sem yfir 100 ungir Geysisfélagar sýndu listir sínar.“

Handhafar æskulýðsbikarsins eru eftirfarandi:

2026 – Geysir
2025 – Skagfirðingur
2024 – Sprettur
2023 – Jökull
2022 – Sörli
2021 – Sleipnir
2020 – Hornfirðingur
2019 – Geysir
2018 – Hringur
2017 – Brimfaxi
2016 – Sörli
2015 – Sprettur
2014 – Fákur
2013 – Sindri
2012 – Sleipnir
2011 – Hörður
2010 – Logi
2009 – Dreyri
2008 – Þytur
2007 – Máni
2006 – Léttir
2005 – Andvari
2004 – Blær
2003 – Fákur
2002 – Smári
2001 – Máni
2000 – Freyfaxi
1999 – Hörður
1998 – Sörli
1997 – Gustur
1996 – Léttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link