479.960 hross hlutu nýtt kynbótamat í dag

  • 25. október 2022
  • Fréttir

Álfamær frá Prestsbæ stóð efst í flokki 7 vetra og eldri hryssna á Landsmótinu, knapi Árni Björn Pálsson. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Búið að reikna út nýtt kynbótamat

Nýr kynbótamatsútreikningur liggur nú fyrir inni á WorldFeng fyrir alls 479.960 hross. Gögn um kynbótamat í valpörunum og stóðhestavali mun verða uppfært síðar.

Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins.

Hér fyrir neðan eru efstu hross í kynbótamati og komin á tamningaaldur.

Nafn Aldur Ae. kynbótamats Öryggi
Álfamær frá Prestsbæ 7 141 82%
Staka frá Hólum 6 140 82%
Pála vom Kronshof 5 138 81%
Díva frá Kvíarhóli 5 138 82%
Skýr frá Skálakoti 15 137 98%
Dimma frá Hjarðartúni 7 137 83%
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 9 136 91%
Lydía frá Eystri-Hól 7 135 81%
Bylgja frá Bæ 7 135 82%
Hrönn frá Ragnheiðarstöðum 9 135 82%
Ósey frá Ragnheiðarstöðum 8 135 82%
Þrá frá Prestsbæ 8 135 82%
Skipting frá Prestsbæ 10 135 82%
Dyngja frá Feti 5 135 82%

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link