Námskeið fyrir nýja kynbótadómara
Námskeið fyrir nýja kynbótadómara verður haldið á vegum FEIF í mars á næsta ári. Af því tilefni auglýsum við eftir áhugasömum einstaklingum. Þær kröfur sem gerðar eru til menntunar eru BS-gráða í búvísindum, hestafræði eða dýralækningum, reynsla af þjálfun hrossa og að umsækjendur hafi lokið áfanga í kynbótadómum.
Áhugasamir hafi samband við Elsu Albertsdóttur fyrir 7. febrúar nk. Netfang [email protected] eða í síma 516-6000.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa