Hrossaræktin 2026 – Ráðstefna
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
13:00 Setning – Ólafur Þórisson formaður fagráðs og deildar
hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
13:10 Hrossaræktarárið 2026 – Þorvaldur Kristjánsson
13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2026 heiðraðar og
afkvæmahestur
13:50 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
Kaffihlé
Hófar og heilbrigði:
Áhrif hóflengdar á áhættuna á ágripum – Þorvaldur
Kristjánsson
Hófar og heilbrigði – Gestur Páll Júlíusson
15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2026
Fundarslit um 16:15
Allir velkomnir!
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa
Opið fyrir umsóknir í 1. deildina