Krókus frá Dalbæ yfir níuna
Í dag fóru fram úrsit á Gæðingamóti Sleipnis á Selfossi en forkeppni kláraðist í gær. Í B-flokki var keppnin talsvert spennandi en svo fór að Hreyfill frá Vorsabæ II hafði sigur með 8,97 en Krókus frá Dalbæ sigraði A-flokkinn örugglega með 9,01 í einkunn.
Keppt var í fyrsta sinn í C-flokki gæðinga en það er ný keppnisgrein sem ætluð eru byrjendum og lítið vönu keppnisfólki. Skráning í þennan flokk var lítil og spurning hvort nokkrir knapar í þessum flokki hafi átt erindi í þennan flokk sökum þess að þeir hafa að baki margra ára reynslu í keppni. Svo fór að Jessica Dahlgren og Glæta frá Hellu sigruðu með 8,37 í einkunn.
Úrslit dagsins eru eftirfarandi:
A-flokkur
1. Krókus frá Dalbæ / Sigursteinn Sumarliðason 9,01
2. Askur frá Syðri-Reykjum / Haukur Baldvinsson 8,51
3. Stikla frá Auðsholtshjáleigu / Sarah Höegh 8,50
4. Virðing frá Auðsholtshjáleigu / Agnes Hekla Árnadóttir 8,44
5. Djörfung frá Skúfslæk / Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,44
6. Gáll frá Dalbæ / Sólon Morthens 8,43
7. Sleipnir frá Lynghóli / Helgi Eyjólfsson 8,38
8. Þytur frá Litla-Hofi / Hilmar Þór Sigurjónsson 8,20
9. Elding frá Laugardælum / Bjarni Sveinsson 8,12
B-Flokkur
1. Hreyfill frá Vorsabæ 2 / Sigurður Óli Kristinsson 8,97
2. Sending frá Þorlákshöfn / Helga Una Björnsdóttir 8,88
3. Katla frá Ketilsstöðum / Bergur Jónsson 8,82
4. Frami frá Ketilsstöðum / Elin Holst 8,67
5. Þruma frá Akureyri / Sigurður Sigurðarson 8,63
6. Nanna frá Leirubakka / Matthías Leó Matthíasson 8,52
7. Vals frá Auðsholtshjáleigu / Agnes Hekla Árnadóttir 8,50
8. Steinálfur frá Horni I / Ómar Ingi Ómarsson 8,49
C-Flokkur
1. Jessica Dahlgren og Glæta frá Hellu ; 8,37
2. Atli Fannar Guðjónsson og Katla frá Ytri-Löngumýri ; 8,21
3. Emma Gullbrandsson og Árni frá Stóru-Hildisey ; 8,13
4. Ann Kathrin Berner og Fiðla frá Sólvangi ; 8,09
5. Bára Bryndís Guðmundsdóttir og Eskill frá Lindarbæ ; 8,05
Ungmennaflokkur
1. Hildur Guðbjörg Benediktsdóttir / Hvöt frá Blönduósi 8,36
2. Berglind Rós Bergsdóttir / Simbi frá Ketilsstöðum 8,32
3. Hjördís Björg Viðjudóttir / Ester frá Mosfellsbæ 8,05
Unglingaflokkur
1. Atli Freyr Maríönnuson / Óðinn frá Ingólfshvoli 8,53
2. Þuríður Ósk Ingimarsdóttir / Jakob frá Árbæ 8,32
3. Katrín Eva Grétarsdóttir / Kopar frá Reykjakoti 8,28
4. Kári Kristinsson / Hreyfill frá Fljótshólum 2 8,07
Barnaflokkur
1. Stefanía Hrönn Stefánsdóttir / Dynjandi frá Höfðaströnd 8,47
2. Unnsteinn Reynisson / Fáni frá Selfossi 8,38
3. Bríet Bragadóttir / Líndal frá Eyrarbakka 7,95
4. Elfar Ísak Halldórsson / Rökkvi frá Strönd II 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH