Opið er fyrir umsóknir í Suðurlandsdeildina
Þau lið sem féllu úr deildinni 2023 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.
Umsóknarfrestur fyrir ný lið er til 12. nóvember n.k.
Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Í parafimi keppir eitt par skipað 1 atvinnumanni og 1 áhugamanni. Í skeiði og slaktaumatölti keppir 1 atvinnumaður og 1 áhugamaður en í öðrum greinum keppa 2 atvinnumenn og 2 áhugamenn. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.
Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.
Áhugamaður: Er að lágmarki 18 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.
Keppniskvöldin verða fjögur:
5. mars – Parafimi og slaktaumatölt
19. mars – Fjórgangur
9. apríl – Fimmgangur
23. apríl – Tölt og skeið
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.
Þátttökugjald 2024 er 165.000 kr.
Innifalið í gjaldinu eru tveir æfingatímar í Rangárhöllinni fyrir hvert keppniskvöld.
Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á [email protected].
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina sem er að hefja sitt áttunda tímabil.
Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts