Enn laus pláss á Gait Academy

  • 4. janúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Stian Pedersen

Enn laus pláss á Gait Academy

Enn er laust fyrir þrjá áhugasama nemendur á reiðnámskeið með Stian Pedersen, Bent Rune Skulevold og Eyjólfi Þorsteinssyni sem haldið verður 11.-13. janúar nk. á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

 
„Í mörg ár hafa þeir félagar verið með námskeiðið Gait Academy, bæði í Noregi og Danmörku við frábæran orðstír. Nú loks verður námskeiðið haldið hér á Íslandi.  Námskeiðið verður 11.-13. janúar n.k  á Sörlastöðum í Hafnarfirði.  Frábært þriggja daga helgarnámskeið fyrir alla sem vilja komast á næsta stig hestamennskunnar. 
Byrjað verður á kynningu á Gait Academy , svo er bæði bókleg og verkleg kennsla. 
Öflugt og krefjandi námskeið fyrir alla, hvar sem þeir eru staddir í hestamennskunni,“ segir í tilkynningu en nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Gait Academy og skráning er í gegnum netfangið [email protected].
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link