Vetrarleikar Sóta – úrslit
Fyrstu vetrarleikar Sóta fóru fram í grenjandi rigningu á velli félagsins á laugardaginn 13.feb. Tvísýnt var um hvort völlurinn yrði keppnishæfur en það kom í ljós að beina brautin norðanmegin var í fínu lagi svo öll keppnin fór fram á beinni braut. Það voru greinilega einhver veðrabrigði í hrossunum því sum reyndust körg, önnur í fýlu og sum jafnvel hrekktu knapann á vellinum en mótið gekk þó stórslysalaust fyrir sig. Verðlaunafhending var í troðfullu félagshúsi, innanum hundblauta keppendur og ótrúlega marga áhorfendur sem gæddu sér á kaffi og pylsum. Dómari var Atli Guðmundsson og úrslit urðu þannig
(myndin er af keppendum í barnaflokki, Berglind sigurvegari er lengst t.v. í blárri peysu)
1. Vetrarmót Sóta 2010 – úrslit og stigagjöf
TÖLT
Barnaflokkur stig
1 Berglind Birta Jónsdóttir Baugur 10
2 Ólafía María Aikman Orion 8
3 Pátrekur Örn Arnarson Hrímnir 6
4 Böðvar Breki Guðmundsson Stika 4
5 Margrét Lóa Björnsdóttir Sperra 2
Unglingaflokkur: stig
1 Alexandra Ýr Kolbeins Lyfting 10
2 Olga María Högnadóttir Fleygur 8
3 Tómas Guðmundsson Móa 6
Ungmennaflokkur: stig
1 Signý Antonsdóttir Ör 10
2 Sigrún Halldóra Andrésdóttir Völundur 8
Kvennaflokkur: stig
1 Sigrún Antonsdóttir Djákni 10
2 Elfur Harðardóttir Frami 8
3 Andrea Eðvaldsdóttir Þór 6
Karlaflokkur: stig
1 Gunnar Karl Ársælsson Klassik 10
2 Arnar Ingi Lúðvíksson Perla 8
3 Högni Gunnarsson Djákni 6
4 Sveinn Guðsteinsson Pjakkur 4
5 Jóhann Þór Kolbeins Brekka 2
Þrígangur
Unglingaflokkur: stig
1 Olga María Högnadóttir Fleygur 10
2 Alexandra Ýr Kolbeins Lyfting 8
3 Tómas Guðmundsson Móa 6
Ungmennaflokkur: stig
1 Signý Antonsdóttir Ör 10
2 Sigrún Halldóra Andrésdóttir Völundur 8
Kvennaflokkur: stig
1 Andrea Eðvaldsdóttir Þór 10
2 Elfur Harðardóttir Frami 8
3 Sigrún Antonsdóttir Djákni 6
4 Steinunn Guðbjörnsdóttir Djákni 4
Karlaflokkur: stig
1 Arnar Ingi Lúðvíksson Prestur 10
2 Gunnar Karl Ársælsson Klassik 8
3 Sveinn Guðsteinsson Kyndill 6
4 Jóhann Þór Kolbeins Brekka 4
5 Högni Gunnarsson Djákni 2
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH