Svíþjóð Margareterhof er selt

  • 5. nóvember 2026
  • Fréttir

Margareterhof í Svíþjóð. Ljósmynd: Malin Landgren HF Agency

Búgarðurinn hefur um árabil verið ein helsta miðstöð íslenska hestsins á Norðurlöndum

Í september var hinn sögufrægi hestabúgarður Margaretehof í Everöd við Kristianstad í Svíþjóð settur á sölu. Hestamiðilinn Hestamagasin greinir frá því að kaupendur sér mæðgurnar Martina og Josephine Williams auk James Faulkner sem staðfesti það í samtali við Eiðfaxa.

Búgarðurinn hefur um árabil verið ein helsta miðstöð íslenska hestsins á Norðurlöndum. Í samtali við Ridsport lýsti Viveca Montan, seljandi og ábúandi á Margareterhof, yfir mikilli ánægju með söluna og sagði það gleðja sig einna mest að kaupendurnir stundi hestamennsku með íslensk hross. Nýir eigendur taka undir það við Hestamagasin og segjast vilja halda áfram í anda Montan-fjölskyldunnar en jafnframt þróa starfsemina áfram.

Það má því búast við því að Margareterhof verði áfram notað til stórmóta og mótahalds. Ásett verð var 37 milljónir sænskra króna. Jörðin spannar 174 hektara og státar af fyrsta flokks aðstöðu, þar á meðal tveimur keppnisvöllum, 300 metra skeiðbraut, reiðhöll, hesthúsum, fullkominni endurhæfingaraðstöðu fyrir hesta ásamt glæsilegum íbúðarhúsum.

 

*Fréttin var uppfærð þegar upplýsingar um hverjir væru kaupendur bárust Eiðfaxa

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link