Frjósemi íslenskra hryssa

  • 9. nóvember 2026
  • Fréttir

Fyl í móðurkviði. Mynd birt á síðu Smithsonian Magazine.

Grein I: Hver er staðan á frjósemi í íslenska hrossastofninum? Eru yfir höfuð til gögn sem af má draga haldbærar ályktanir?

Síðustu ár hafa meðhöndlanir við fyljun hryssa aukist. Sitt sýnist hverjum. Hluti ræktenda heldur á lofti leiðum náttúrunnar og óttast að inngrip hafi óafturkræf áhrif á frjósemi stofnsins. Sumir þeirra hika þó ekki við að láta sæða hryssur sínar, þá gjarnan við hestum sem eru notaðir umfram það sem náttúrlegar leiðir hefðu boðið þeim. Annar hluti ræktenda grípur einfaldlega til þeirra ráðstafana sem til þarf til að rækta undan sínum bestu ræktunargripum. Eignast jafnvel nokkur sammæðra folöld á ári með aðstoð staðgöngumæðra.

Þessi mál eru umdeild. Stafa gagnrýnisraddir helst frá þeim sem hafa aldrei eignast gæðing sem freistandi er að sái frjóum sínum sem víðast? Snerist skoðun þeirra á hvolf við það eitt að lenda í þeirri stöðu? Eða, eru þarna æðri prinsipp til grundvallar, þau sem varða framtíðarfrjósemi stofnsins í heild? Er sá ótti á rökum reistur?

Geta hestamenn kvartað yfir að hrossaræktendur selji bestu gæðinga sína úr landi, því þá fái stofninn ekki notið þeirra gæða, – en jafnframt kvartað yfir að þeim gæðingum sem haldið er eftir fjölgi sér um of?

Og þá er líklega komið að meginspurningunni: Hver er staðan á frjósemi í íslenska hrossastofninum? Eru yfir höfuð til gögn sem af má draga haldbærar ályktanir?

Engin haldbær gögn til staðar

Charlotta Oddsdóttir lauk embættisprófi í dýralækningum frá Kaupmannahöfn árið 2003 og doktorsprófi í frjósemi hrossa frá Edinborg árið 2008. Doktorsverkefni hennar fjallaði um legbólgu hjá hryssum, þar á meðal langvinna legbólgu og þá þætti sem hafa áhrif á vefjahreinsun og uppbyggingu í legslímhúð eftir legbólgu.

Charlotta hefur jafnframt mikla praktíska reynslu af málaflokknum. Hún vann hjá Dýralæknamiðstöðinni á Hellu 2007-2010 en árin 2011-2015 sem eftirlitsdýralæknir og sérgreinadýralæknir Matvælastofnunar. Árið 2015 tók hún lektorsstöðu við Landbúnaðarháskóla Íslands en frá árinu 2018 hefur hún starfað á Keldum við rannsóknir á dýrasjúkdómum. Samhliða öllu þessu hefur hún frá árinu 2010 sinnt greiningu, meðhöndlun og ráðgjöf vegna frjósemisvandamála hjá hryssum en sýnishornum af þeirri vinnu, fræðslu og upplýsingum hefur hún deilt á Fésbókarsíðunni „Merin-frjósemi hrossa“.

Mæðgur. Mynd: Fanney Hrund Hilmarsdóttir.

Hafa frjósemisvandamál aukist, eða höfum við bara nýverið hafist handa við að vinna gegn þeim?

„Til þess að svara þessu með vissu þyrftu að vera til góðar skráningar yfir frjósemi í hrossastofninum. Því miður hafa gögn sem fást úr Worldfeng ekki verið nógu nákvæm til að geta nýtt þau. Þó hef ég aðeins tekið saman tölur úr skýrsluhaldinu. Það er því miður talsvert um að heilu hryssuhóparnir sem dvöldu hjá stóðhesti yfir sumarið séu með komuskráningu sama daginn að vori og heimför um áramót. Einnig er of mikið um að þær hryssur sem fara ófyljaðar frá hesti komi hvergi fram í skýrslum. Þetta gerir okkur ómögulegt að fá áreiðanleg gögn yfir frjósemi íslenska hestsins.“

Undirrituð bjóst ekki við að svo snemma í ferlinu fengjust svör – en þar höfum við það: Engin haldbær gögn eru til staðar svo fullnægjandi mat verði lagt á þróun frjósemi íslenska hrossastofnsins. Charlotta heldur áfram:

„Ennþá er það þannig að flestar hryssur fyljast í hólfi hjá stóðhesti. Hin margvíslega notkun íslenska hestsins hefur haft jákvæð áhrif á frjósemi stofnsins í gegnum tíðina, þar sem fá afkvæmi lágu eftir vangæfar hryssur [innskot höfundar: með frjósemisvanda]. Í dag er orðin meiri sérhæfing og aukinn þrýstingur um að ákveðnar hryssur skili mörgum afkvæmum, auk þess sem við öflum í dag mun meiri upplýsinga um hverja hryssu en áður.“

Hvernig komumst við úr þessari gagnaþurrð?

Ljóst er að engin áreiðanleg leið er að fylgjast með frjósemi íslenska hrossastofnsins ef engum haldbærum upplýsingum er safnað. Hvað er til ráða?

„Það eru ýmsar leiðir til að mæla frjósemi búfjár og margvísleg nálgun á að gefa hana upp eftir því hver búfénaðurinn er. Til að mæla frjósemi í hrossastofnum eru notaðar mælieiningar eins og „fjöldi fylja per gangmál“ sem felur í sér fjölda gangmála sem þarf til að fylja meðalhryssuna. Einnig „hlutfall fæddra folalda per hryssu haldið“ svo eitthvað sé nefnt. Til að átta sig á frjósemi hverrar hryssu gefur mjög góðar upplýsingar hversu mörg gangmál þarf að halda henni svo hún fyljist, hvort þurfti að meðhöndla hryssuna með legskoli eða hormónum o.s.frv. Þegar við höfum ekki slíka nákvæmni í skýrsluhaldinu er ekki hægt að meta frjósemina í stofninum á áreiðanlegan hátt.“

Nýköstuð hryssa. Önnur óköstuð fylgist spennt með. Mynd: Charlotta Oddsdóttir.

Vandinn liggur í skráningum

Niðurstaðan er því tvíþætt: A. Við getum aflað upplýsinga til að meta frjósemi stofnsins hverju sinni. B. Til þess verður að gera breytingar á kröfum um skráningu í tengslum við fyljanir. Þetta er þó ekki vandalaust. Breyturnar eru margar, líkt og Charlotta tiltekur:

„Til að greina ástæður fyrir vangæfni hjá hryssu er alltaf vænlegra að hafa sem bestar og nákvæmastar upplýsingar. Hryssa sem hefur eingöngu verið í hólfi hjá hesti og ekki fyljast, er fyrir mér sem óskrifað blað. Það er svo margt sem gæti valdið, svo sem atferli hests og hryssu, atferli annarra hryssna í hólfinu, og fjöldi hryssna hjá hestinum svo eitthvað sé nefnt. Ef hryssunni hefur verið haldið á húsi eða hún sædd og upplýsingum safnað um hana horfir málið strax öðruvísi við.“

Í næstu grein beinum við sjónum okkar að þessum helstu frjósemisvandræðum sem hryssueigendur standa frammi fyrir, áhrifaþáttum, greiningu og meðhöndlun. Þýðir það að hryssu gangi illa að fyljast endilega að hún eigi við frjósemisvanda að stríða? Eða, geta aðrar ástæður legið að baki? Ástæður sem ættu ekki að erfast til afkomenda. Geta þá inngrip við fyljun einnar hryssu haft annars konar afleiðingar fyrir framræktun ófrjósemi en sambærilegt inngrip við fyljun annarrar?

Fylgist grannt með.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link