„Ég er áhugamaður plús“

Haukur Baldvinsson er nýliði í íslenska landsliðshópnum sem tilkynntur var í lok október. Ólíkt flestum sem valdir eru í landslið Íslands hefur Haukur ekki atvinnu af tamningu og þjálfun hrossa.

„Mér líður mjög vel,“ segir Haukur aðspurður um tilfinninguna. Hann segir landsliðssætið ekki hafa verið beinlínis á teikniborðinu: „Maður er alltaf bara að reyna að standa sig og hafa gaman af þessu, gera sitt besta og sjá hvað það skilar manni. Auðvitað sá maður fyrir sér að þetta gæti gerst, en ekki endilega núna. Þetta er bara mjög skemmtilegt og auka bónus að sonur minn, Loftur, sé líka kominn inn í ungmennahópinn.

Dagsdaglega vinnur Haukur sem bílasali og ríður út og þjálfar sín hross eftir vinnu í Austurási þar sem hann stundar hrossarækt ásamt konu sinni Ragnhildi Loftsdóttur og fjölskyldu. “Ég hef stundum sagt í gríni að ég sé svona “áhugamaður plús”, segir Haukur. “Ég ríð bara út mér til skemmtunar. Samhliða því hef ég passað upp á líkamlega formið, stunda ræktina reglulega. Það skiptir gríðarlega miklu máli að knapinn sé í góðu ástandi líkt og hesturinn.”

Þrátt fyrir það að vera “áhugamaður plús” er Haukur enginn nýgræðingur á keppnisvellinum, hann státar af fimm Íslandsmeistaratitlum á ferlinum. Þrisvar sinnum í gæðingaskeiði á Fal frá Þingeyrum og tvisvar sinnum í samanlögðum fimmgangsgreinum á Sölva frá Stuðlum.

Haukur og Sölvi frá Stuðlum. Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum á Íslandsmóti á Hólum árið 2021. Við hlið hans stendur Elvar Einarsson formaður Hestamannafélagsins Skagfirðings

Féll fyrir Andvara á Stóðhestaveislu

Nú er hann kominn með nýjan keppnishest, Andvara frá Kerhóli, en þeir hófu sinn keppnisferil á síðasta ári og stóðu sig svo frábærlega í ár og urðu til að mynda í öðru sæti á Íslandsmótinu í gæðingaskeiði með 8,79 í einkunn. “Ég sá hann fyrst á Stóðhestaveislu sýndur af Rósu Birnu Þorvaldsdóttur og varð strax mjög heillaður af honum. Hann hvarf ekki úr höfðinu á mér eftir það. Ég setti mig í samband við Rósu Birnu og  Þór Jónsteinsson með það að markmiði að kaupa hann, það leið nokkur tími þar til samningar tókust, en það gekk upp að lokum. Andvari er gæðingur, kraftmikill en samt algerlega undir stjórn. Geðslagið er einstakt, hann er vel taminn og þjálfaður og gaman að byggja ofan á það.”

Þegar kemur að vetrarþjálfuninni ætlar Haukur að halda sínu striki. Hann stefnir ekki á þátttöku í Meistaradeildinni sjálfur, enda henti það ekki hans dagskrá: „Ég einbeiti mér að tveimur hestum til að geta gert það vel sem ég er að gera. Svo ætla ég að sinna syninum og standa þétt að baki honum í ungmennadeildinni.“

Hann leggur ríka áherslu á að sækja sér kennslu og nefnir meðal annars samstarf sitt við Anton Pál Níelsson sem kemur reglulega til þeirra. Á heimilinu er einnig mikil hrossarækt og nóg um að vera. „Húsið er þéttsetið fyrir vetrarþjálfunina, en Ragga stýrir því öllu með miklum glæsibrag. Þetta lítur allt mjög vel út og það er spennandi tími fram undan,“ segir Haukur að lokum.

 

Hver er þín framtíðarsýn fyrir Landsmót?

Landssamband hestamanna hefur sett af stað könnun um Landsmót Hestamanna sem á sér langa og merkilega sögu og nú er unnið að framtíðarsýn fyrir mótið. Hvað viljum við halda í? Hvað eigum við að gera meira af, minna af eða jafnvel hætta? Og hvar liggja tækifærin, hér heima og erlendis?

Í tilkynningu frá sambandinu kemur m.a. fram að til að svara þessum spurningum þurfi að heyra frá sem flestum. Líka frá þeim sem mæta sjaldan eða hafa aldrei mætt á Landsmót. Þín skoðun skiptir máli.

Taka þátt í könnuninni

Könnunin er stutt (tekur aðeins um 5 mínútur) og nafnlaus. Svörin verða eingöngu notuð í þessari vinnu og ekki rakin til einstaklinga.

Hún verður opin til 9. nóvember og niðurstöðurnar verða nýttar sem grunnur að vinnu vinnuhóps sem mótar framtíðarsýnina og skilar tillögum til stjórnar LH.

Útgáfufagnaður ævisögu Kóka á Korputorgi

Útgáfu ævisögunnar Aftur á bak eftir Loga Bergmann Eiðsson verður fagnað fimmtudaginn 5. nóvember í verslun Líflands á Korputorgi. Bókin fjallar um ævi Herberts „Kóka“ Ólasonar, sem hefur lifað viðburðaríku lífi og sett mark sitt á íslenskt hestamannalíf og samfélagið víðar.

Útgáfufagnaðurinn stendur yfir frá kl. 17:00 til 18:00. Þar mun Logi Bergmann lesa upp úr bókinni og segja frá tilurð hennar. Gestum verður einnig boðið upp á léttar veitingar og gefst kostur á að kaupa áritað eintak á sérstöku útgáfuverði.

Í kynningu á bókinni segir að Logi skrifi persónulega, einlæga og oft bráðfyndna ævisögu Kóka, sem hefur víða skilið eftir sig spor.

Útför Jóns Steinbjörnssonar

Jón Steinbjörnsson verður jarðsettur frá Sauðárkrókskirkjugarði, fimmtudaginn 5.nóvember klukkan 14:00.

Jón Steinbjörnsson, oftast kallaður Nonni, lést 22. ágúst eftir veikindi. Nonni var mikill hestamaður og lagði mikið af mörkum til ræktunar og útbreiðslu íslenska hestsins, ekki síst í Þýskalandi. Hann var einn af sendiherrum íslenska hestsins. Hann flutti út mörg hundruð hross og kom að sölu þeirra og vann ötullega að kynningarstarfi íslenska hestsins á erlendri grundu.

Nonni var fæddur og uppalinn á Hafsteinsstöðum í Skagafirði og hafði unnið meira og minna fyrir sér við tamningar og þjálfun hér heima áður en hann flutti til Þýskalands árið 1984. Hann hlaut viðurkenningu frá þýska landssambandinu fyrir lífsstarf sitt í þágu hestamennsku bæði í ræktun og útbreiðslu íslenska hestsins en hann var sá fyrsti til að hljóta þessa viðurkenningu frá sambandinu.

Uppsveitadeildin 2027

Umsóknarfrestur er til og með 15.nóvember. Fyrstu sjö liðin sem sækja um innan umsóknarfrests fá þátttökurétt í deildinni. Heimilt er að skrá eins marga keppendur í hvert lið en fjórir keppa í hverri grein úr hverju liði, tveir áhugamenn og tveir atvinnumenn. Skráningargjald fyrir hvert lið er 165.000 sem greiða þarf fyrir 1. febrúar.

Uppsveitadeildin fer fram í reiðhöllinni á Flúðum þar sem keppt er í fjórgangi (V1 og V2), fimmgangi (F1 og F2), tölti (T1 og T3) og skeiði (P2) í gegnum höllina.

Keppnisdagar eru eftirfarandi (birt með fyrirvara um breytingar):
Fjórgangur (V1 og V2) – föstudagurinn 12. mars
Fimmgangur (F1 og F2) – laugardagurinn 3. apríl
Tölt (T1 og T3) og skeið (P2) – laugardagurinn 17. apríl

Meðfylgjandi eru reglur Uppsveitadeildarinnar:
https://hmfjokull.is/mot/uppsveitadeildin/

Skráning og nánari upplýsingar – [email protected]

„Maður verður líka að kunna að njóta ferðalagsins“

Á löngum og farsælum keppnisferli hefur Nils-Christian Larsen skipað sér í hóp fremstu knapa og unnið til fjölda meistaratitla. Þegar hann lítur yfir farinn veg standa þó ekki síður upp úr hestarnir, fólkið og reynslan sem hann hefur öðlast á leiðinni.

Í samtali við Eiðfaxa rifjar hann upp ferilinn, segir frá starfseminni á Kronholt í Danmörku og þeim áformum sem hann hefur um framtíðina.

Litlu skrefin að stóru sigrunum

Nils-Christian hefur lengi lagt áherslu á að setja sér markmið og vinna markvisst að þeim. Hann hefur fundið mikla ánægju í því að sjá hvernig vinnan skilar árangri, skref fyrir skref.

„Þegar ég lít til baka er það fyrst og fremst allt ferðalagið sem stendur upp úr. Ég hef alltaf verið duglegur að setja mér markmið, bæði stór og smá, og mér finnst sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig öll þessi litlu skref og áfangasigrar hafa smám saman skilað sér í stærri árangri.“

Á ferlinum hefur hann fagnað sigrum á stórmótum víða um Evrópu, meðal annars unnið meistaratitla í Noregi, Þýskalandi og Hollandi auk Norðurlandameistaratitla. Að baki titlunum liggur mikil vinna en þegar Nils-Christian rifjar upp ferilinn er það fleira en sigrarnir sem standa upp úr.

„Það sem stendur kannski mest upp úr er ekki bara titlarnir sjálfir, heldur leiðin að þeim. Allir hestarnir sem ég hef fengið að vinna með, fólkið sem hefur verið hluti af ferðalaginu og allt sem maður hefur lært á leiðinni.“

Hestarnir hafa verið stór hluti af lífi Nils-Christian sem hefur um árabil starfað við þjálfun, kennslu og hrossarækt.
Mynd úr einkasafni Nils-Christian Larsen.

Kronholt – þar sem margt fer saman

Keppnisferillinn er aðeins einn hluti af lífi Nils-Christian. Á Kronholt í Danmörku hefur hann byggt upp fjölbreytta starfsemi þar sem hrossarækt, þjálfun, kennsla og sala hrossa fléttast saman.

Starfsemin hefur tekið miklum breytingum í gegnum árin en Nils-Christian hefur haldið fast í þær áherslur sem hann lagði upp með í upphafi.

„Markmiðið hefur alltaf verið að byggja upp góða og faglega starfsemi þar sem gæði hestanna og góð reiðmennska eru í fyrirrúmi.“

Hann lítur á ólíka þætti starfseminnar sem eina heild og segir kennsluna meðal annars mikilvæga fyrir eigin þróun sem reiðmanns.

„Ræktunin gefur okkur tækifæri til að hugsa til lengri tíma, þjálfunin er grunnurinn að öllu og kennslan heldur manni líka á tánum sem reiðmanni.“

Stór áform fyrir Kronholt

Nils-Christian lætur ekki staðar numið við það sem þegar hefur verið byggt upp. Hann hefur ýmsar hugmyndir um framtíð stöðvarinnar og sér tækifæri til að bæta aðstöðuna enn frekar.

„Ég er líka með heilmikil framtíðarplön fyrir Kronholt og margar hugmyndir um frekari uppbyggingu. Mér finnst mjög spennandi að geta haldið áfram að þróa aðstöðuna og skapa enn betri umgjörð utan um starfsemina.“

Samhliða uppbyggingunni vill hann halda áfram að vinna með góða hesta og sjá árangur af ræktunarstarfinu. Þótt framtíðaráformin séu metnaðarfull leggur hann áherslu á að þróa starfsemina án þess að það komi niður á gæðunum.

Á Kronholt í Danmörku fer fram fjölbreytt starfsemi. Nils-Christian hefur jafnframt metnaðarfull áform um frekari uppbyggingu.

Lífið er meira en næsti sigur

Með árunum hefur Nils-Christian farið að horfa öðrum augum á það hvað felst í velgengni. Þótt hann stefni enn að nýjum sigrum hefur hann lært að það skiptir ekki síður máli að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.

„Með árunum hef ég líka lært að það er mikilvægt að vera ánægður með það sem maður hefur í dag. Við eigum auðvitað að setja okkur markmið, hafa metnað og vera staðráðin í að ná árangri, en við megum heldur ekki gleyma að njóta þess sem við höfum á meðan við vinnum að næsta markmiði.“

Hann þekkir vel þá tilfinningu að vera stöðugt á leiðinni að einhverju nýju. Með reynslunni hefur hann þó áttað sig á mikilvægi þess að staldra við.

„Það er auðvelt að vera alltaf að eltast við eitthvað meira, næsta sigur, næsta verkefni eða næsta stóra markmið. En lífið má ekki bara snúast um að komast á næsta áfangastað. Maður verður líka að kunna að njóta ferðalagsins.“

Nils-Christian Larsen hefur mörg járn í eldinum og horfir bjartsýnn til framtíðar.

Og kannski nokkrir titlar í viðbót

Þegar Nils-Christian horfir til framtíðar vill hann finna jafnvægi milli þess að fylgja metnaðinum og njóta lífsins með fólkinu í kringum sig.

„Fyrir mér snýst framtíðin því um að finna gott jafnvægi. Halda áfram að vera metnaðarfullur, forvitinn og hafa stór draumamarkmið, en um leið gefa sér tíma til að njóta lífsins, fólksins í kringum sig og allra litlu hlutanna sem gera dagana góða.“

Þótt viðhorf hans til árangurs hafi breyst er keppnisskapið greinilega enn til staðar. Hann slær að minnsta kosti á létta strengi í lok samtalsins.

„Og auðvitað væri ekkert verra að bæta nokkrum titlum í safnið í leiðinni!“

 

Ungir knapar Skagfirðings fögnuðu góðu keppnisári

Það var líf og fjör í Tjarnarbæ þann 25. október þegar æskulýðsdeild Hestamannafélagsins Skagfirðings hélt uppskeruhátíð sína. Ungir hestamenn komu saman til að fagna árangri keppnistímabilsins og njóta samverunnar. Á dagskrá voru verðlaunaafhending, Kahoot-spurningaleikur um hesta og pizzaveisla.

Uppskeruhátíðin var skemmtilegur lokapunktur á keppnistímabilinu og tækifæri fyrir iðkendur til að gleðjast saman. Þar var árangur unga fólksins í sviðsljósinu en jafnframt lögð áhersla á þátttöku og félagsskapinn sem er mikilvægur hluti af æskulýðsstarfinu.

Yngstu knaparnir, pollarnir, fengu allir þátttökuverðlaun fyrir dugnað sinn á árinu. Þá færði æskulýðsdeildin öllum iðkendum höfuðband með merki félagsins að gjöf. Það ætti að koma sér vel undir reiðhjálminn þegar vetrarkuldinn fer að bíta í kinnarnar.

Hjördís Halla Þórarinsdóttir (t.v.) og Hreindís Katla Sölvadóttir voru útnefndar knapar ársins 2026 í unglinga- og barnaflokki hjá Hestamannafélaginu Skagfirðingi. Mynd: Freydís Bergsdóttir

Hjördís Halla og Hreindís Katla knapar ársins

Hjördís Halla Þórarinsdóttir var útnefnd knapi ársins 2026 í unglingaflokki eftir glæsilegt keppnistímabil. Hún lét víða að sér kveða á árinu og náði góðum árangri á WR-mótum og Landsmóti hestamanna á Hólum. Hápunktur ársins var Íslandsmeistaratitillinn í fimmgangi sem hún vann á Fáki frá Oddhóli.

Auk Hjördísar Höllu voru Arnheiður Kristín Guðmundsdóttir, Greta Berglind Jakobsdóttir, Sigríður Elva Elvarsdóttir og Sigrún Sunna Reynisdóttir tilnefndar til viðurkenningarinnar.

Farandbikar unglingaflokksins er gefinn af Höfðaströnd ehf. til minningar um Símon Inga Gestsson.

Í barnaflokki var Hreindís Katla Sölvadóttir útnefnd knapi ársins 2026. Hún og Bárður frá Króksstöðum áttu afar gott keppnistímabil og voru meðal annars sigursæl á Félagsmóti Skagfirðings og í Skagfirsku mótaröðinni.

Aðrar tilnefndar voru Auður Fanney Davíðsdóttir, Brynja Rósanna Brynjólfsdóttir, Iðunn Alma Davíðsdóttir og Ólöf Una Pétursdóttir.

Farandbikar barnaflokksins er gefinn af Syðra-Skörðugili.

Dugnaður og árangur verðlaunaður

Fleiri ungir knapar fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur á keppnisbrautinni á árinu. Þau voru Elísa Hebba Guðmundsdóttir, Emily Ósk Andrésdóttir Dreiner, Margrét Katrín Pétursdóttir, María Sjöfn Jónsdóttir, Pétur Steinn Jónsson og Sigrún Ása Atladóttir.

Framtíð hestamennskunnar í góðum höndum

Æskulýðsstarf hestamannafélaganna gegnir mikilvægu hlutverki í uppbyggingu næstu kynslóðar hestafólks. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að efla færni sína, öðlast reynslu og mynda vináttubönd í kringum sameiginlegt áhugamál.

Keppnisárangur er þó aðeins einn hluti starfsins. Ekki síður skiptir máli að skapa umhverfi þar sem allir finna sér stað, hvort sem markmiðið er að keppa á stærstu mótum landsins eða einfaldlega njóta samverunnar með hestunum.

Á uppskeruhátíð Skagfirðings fögnuðu yngstu pollarnir og reyndari keppnisknapar saman árangri ársins. Það er því óhætt að segja að framtíð hestamennskunnar í Skagafirði sé björt.

Nánari upplýsingar um viðurkenningarnar má finna á heimasíðu Hestamannafélagsins Skagfirðings.

Hver ræður keppnissögu hestsins þíns?

Þú hefur lagt tíma, vinnu og peninga í hestinn þinn. Þú skráir hann á mót, greiðir þátttökugjald og mætir til keppni. Dómarar gefa einkunnir, starfsfólk skráir niðurstöður og sjálfboðaliðar hjálpa til við að láta mótið ganga upp.

Þannig verður keppnissagan til. Mót eftir mót safnast upplýsingar um þátttöku hestsins, einkunnir og úrslit. Þær geta nýst þér, næsta eiganda, ræktanda og öllum sem hafa áhuga á hestinum eða íþróttinni.

En hefurðu velt því fyrir þér hver ákveður hvar þessar upplýsingar mega birtast? Hver má tengja þær við aðrar upplýsingar um hestinn? Og hvort fyrirtæki fái aðgang að þeim til að þróa þjónustu fyrir þig?

Þetta var meðal þess sem kom til umræðu á landsþingi Landssambands hestamannafélaga, LH, um helgina. Þar var tekin til meðferðar tillaga um framtíð mótakerfisins og réttindi hestamannafélaganna yfir mótagögnum. Allsherjarnefnd lagði til að hún yrði felld.

Þótt þinginu sé lokið eiga þessar spurningar áfram erindi við hestamenn.

Tölvukerfið og upplýsingarnar eru ekki sami hluturinn

SportFengur er tölvukerfi sem notað hefur verið til að halda utan um hestamót, meðal annars skráningar, ráslista, einkunnir og úrslit. Fyrirtækið HorseDay vinnur að þróun og rekstri mótakerfis samkvæmt samningi við LH. Það býður jafnframt stafræna þjónustu fyrir hestafólk.

Gott mótakerfi er mikilvægt. Það getur auðveldað skráningar, sparað mótshöldurum vinnu og gert fólki einfaldara að fylgjast með. Þróun og rekstur slíks kerfis kostar fé og það er eðlilegt að greiða fyrir þá vinnu.

En tölvukerfið er eitt og upplýsingarnar sem safnast í það annað.

Keppnissagan verður til vegna þátttöku hestamanna og vinnu félaga, mótshaldara, dómara og sjálfboðaliða. Hestamenn hafa einnig sameiginlega lagt fé og vinnu í uppbyggingu mótakerfisins. Því skiptir máli hvaða heimildir fylgja rekstri þess og hverjir fá að nýta upplýsingarnar.

Hvað kemur þetta þér við?

Hugsum okkur að þú sért að skoða hest á söluvef. Þar gæti verið hægt að sjá keppnissögu hans samhliða myndum, ætterni og lýsingu. Þú gætir séð hvernig honum hefur gengið í mismunandi greinum og hvernig árangurinn hefur þróast.

Annar vefur gæti auðveldað samanburð á árangri hrossa. App gæti látið þig vita þegar uppáhaldshesturinn þinn eða knapi kemur í braut. Fjölmiðill gæti birt ítarlegri umfjöllun um mót og ræktandi gæti fengið betri yfirsýn yfir árangur afkvæma sinna.

Til að þróa slíka þjónustu þarf aðgang að upplýsingunum frá mótunum.

Ef sá aðgangur stendur ekki til boða verða valkostirnir færri. Sumar hugmyndir komast aldrei lengra en á teikniborðið. Hestamaðurinn verður jafnvel aldrei var við það sem tapast, því þjónustan sem hefði getað orðið til birtist honum aldrei.

„Það geta allir búið til sitt eigið kerfi“

Því hefur verið svarað að öðrum sé frjálst að smíða eigið kerfi. En nýr vefur eða nýtt app býr ekki til keppnissögu hestsins.

Sá sem vill birta niðurstöður þarf upplýsingarnar frá mótunum. Sá sem vill sýna árangur hests yfir mörg ár þarf aðgang að eldri niðurstöðum líka. Það leysir ekki vandann að smíða hugbúnað ef upplýsingarnar sem hann þarf eru lokaðar inni annars staðar.

Sameiginleg skráning mótaupplýsinga er verðmæt einmitt vegna þess að hún safnar sögunni saman. Það væri óhagkvæmt að hver þjónustuaðili þyrfti sjálfstætt að safna sömu upplýsingum frá hverjum einasta mótshaldara.

Þess vegna þarf að ræða hvernig fleiri geti nýtt upplýsingarnar sem þegar safnast.

Það er hægt að greiða fyrir aðgang

Það er eðlilegt að HorseDay hafi sanngjarna leið til að endurheimta fjárfestingu sína og standa undir rekstri. Aðgangur annarra þarf heldur ekki að vera ókeypis eða án skilyrða.

Hægt væri að skilgreina hvaða upplýsingar mætti nýta, hvernig þær væru afhentar, hvað aðgangurinn kostaði og hvaða reglur giltu um birtingu. Gæta þarf persónuverndar, öryggis og áreiðanleika. Aðgangur að opinberum úrslitum þarf til dæmis ekki að fela í sér aðgang að greiðsluupplýsingum eða öðrum óviðkomandi persónuupplýsingum.

Spurningin er því hvers vegna ekki sé hægt að finna fyrirkomulag sem bæði stendur undir mótakerfinu og gerir fleiri aðilum kleift að þróa þjónustu.

Afleiðingarnar eru þegar sýnilegar

Á Hestaleit.is hafði verið þróuð virkni sem tengdi mótaupplýsingar við einstaka hesta. Hún var tekin úr birtingu þegar aðgangur að gögnunum var stöðvaður. Stjórn LH hefur síðan hafnað beiðni Hestaleitar um gagnatengingu með vísan til samnings við HorseDay.

Þetta er eitt dæmi um þjónustu sem notendum stendur ekki til boða vegna takmarkana á aðgangi.

LH hefur jafnframt lýst því yfir að HorseDay hafi ekki almennan einkarétt á gögnunum. Þá þarf að útskýra hvaða aðgang aðrir geta fengið í reynd. Hvaða ákvæði samningsins komu í veg fyrir að beiðni Hestaleitar yrði samþykkt? Gilda sömu takmarkanir um aðra sem vilja þróa þjónustu?

Þetta þarf að vera skýrt svo fólk geti metið áhrif fyrirkomulagsins.

Traust og upplýsingar fara saman

Í nefndaráliti landsþingsins var meðal annars vísað til þess að ekki hefði verið sýnt fram á sérstaka annmarka á núverandi fyrirkomulagi. Einnig var lögð áhersla á ábyrgð stjórnar LH og traust til hennar.

Synjun um aðgang og þjónusta sem hefur verið tekin úr birtingu gefa þó tilefni til að skoða áhrifin nánar. Það þarf ekki að liggja fyrir niðurstaða um að eitthvað sé ólögmætt til að spyrja hvort fyrirkomulagið þjóni hestamönnum sem best.

Traust til stjórnar fer vel saman við að aðildarfélögin fái upplýsingar um samninga sem gerðir eru fyrir þeirra hönd. Þau þurfa að geta séð hvaða réttindi hafa verið veitt, hvaða takmarkanir gilda og hversu lengi.

Á landsþingi árið 2022 kom fram sú afstaða fjárhagsnefndar að SportFengur væri í eigu hestamannafélaganna en ekki LH. Það gerir enn mikilvægara að skýra rétt félaganna og aðkomu þeirra að ákvörðunum um framtíð kerfisins og upplýsinganna.

Umræðan á erindi út fyrir þingsalinn

Hinn almenni hestamaður þarf ekki að þekkja tæknina á bak við mótakerfi til að hafa skoðun á þessu. Hann getur spurt einfaldra spurninga:

Hvers vegna má birta keppnissögu hestsins míns á einum stað en ekki öðrum? Hver ákveður það? Hvaða áhrif hefur samningurinn á valkosti mína? Og hvernig er tryggt að upplýsingarnar varðveitist og verði aðgengilegar þótt fyrirtæki eða tölvukerfi breytist?

Hestamenn geta beint þessum spurningum til eigin félags og óskað eftir að það kalli eftir svörum hjá LH. Nýkjörin stjórn sambandsins hefur líka tækifæri til að skýra fyrirkomulagið og kanna hvernig fleiri geti fengið aðgang á sanngjörnum skilyrðum.

Keppnissaga íslenska hestsins verður til fyrir sameiginlegt starf þúsunda manna. Við eigum að ræða opinskátt hvernig hún getur nýst þeim sem best.

Óskar Sæberg Sigurðsson
Lögfræðingur Hestaleitar

Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV

Áhugamannadeild Norðurlands og Eiðfaxi hafa endurnýjað samstarf sitt og undirritað nýjan samning um beinar útsendingar frá keppnum deildarinnar á EiðfaxaTV. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi keppnistímabili.

Unnur Rún Sigurpálsdóttir segir að samstarfið við Eiðfaxa hafi gengið sérlega vel og að gríðarleg aðsókn sé í deildina á nýjan leik. Um sextán lið eru þegar skráð til leiks. Að hennar sögn er mikil og góð stemning í kringum deildina og mikilvægi þess að sýna beint frá mótunum ótvírætt, bæði fyrir keppendur og áhorfendur heima í stofu.

Deildin hefur fest sig rækilega í sessi á svæðinu og sameinar um 70 knapa frá Austurlandi og alla leið vestur í Húnavatnssýslur. Unnur leggur áherslu á að tilvist hennar skipti gríðarlega miklu máli fyrir svæðið í heild, jafnt hvað varðar kennslu, hrossasölu sem og almennt félagsstarf áhugafólks um hestaíþróttir.

Aðspurð um nýjungar fyrir komandi vetur nefnir Unnur að til umræðu sé að bæta við B-úrslitum, þótt endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir enn sem komið er. Að öðru leyti verður keppnisfyrirkomulag hefðbundið þar sem keppt verður í tölti, fjórgangi og fimmgangi. Mótahaldinu verður skipt á milli Akureyrar og Sauðárkróks, en áætlað er að tvö mót fari fram á Akureyri og eitt á Sauðárkróki.

Eiðfaxi hlakkar til áframhaldandi samstarfs í vetur og hvetur áhugafólk um hestaíþróttir til að fylgjast vel með beinum útsendingum á EiðfaxaTV.

Stjórn LH næstu tvö árin

Kosningu á stjórn LH er lokið hér á landsþinginu í Hveragerði. Það var sjálfkjörið í aðalstjórn og formann stjórnar LH en Linda B. Gunnlaugsdóttir heldur áfram sem formaður LH og í aðalstjórn eru eftirfarandi aðilar:

  • Formaður: Linda Björk Gunnlaugsdóttir (Hestamannafélaginu Spretti)
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Glampi
  • Ólafur Gunnarsson, Jökull
  • Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Skagfirðingur
  • Sóley Margeirsdóttir, Geysir
  • Sigurbjörn Eiríksson, Sprettur
  • Jón Þorberg Steindórsson, Geysir

Í varastjórn voru sex í framboði en fimm fulltrúar eru kosnir í varastjórn í varastjórn eru eftirfarandi aðilar:

  • Hilmar Guðmannsson, Fáki
  • Reynir Atli Jónsson, Freyfaxi
  • Rósa Dögg Þórsdóttir, Blæ
  • Rósbjörg Jónsdóttir, Sörla
  • Kjartan Gunnar Jónsson, Geysi