Eldhestar komnir á sölu eftir 40 ára farsælan rekstur
Yfirlitsmynd af byggingum Eldhesta á Völlum í Ölfusi
Tímamót eru runnin upp í íslenskri hestaferðaþjónustu, en ferðaþjónustufyrirtækið Eldhestar í Ölfusi hefur verið sett á sölu. Félagið fagnaði 40 ára afmæli á árinu og telja stofnendur þess, sem öll eru komin á eftirlaunaaldur, tímabært að ný kynslóð taki við keflinu og leiði starfsemina inn í næsta vaxtarskeið. Við tókum Hróðmar Bjarnason, sem leitt hefur uppbyggingu félagsins frá 1990, tali og ræddum ákvörðunina, sögu uppbyggingarinnar og framtíðartækifærin sem bíða nýrra eigenda.
Aðspurður um ákvörðunina segir Hróðmar að stofnendur félagsins hafi setið í stjórn frá upphafi, en nú sé rétti tíminn til kynslóðaskipta. „Við teljum okkur skilja eftir fyrirtæki sem stendur á afar traustum grunni, með sterkt vörumerki, öfluga innviði, reynslumikið starfsfólk og skýra vaxtarmöguleika. Nýir eigendur taka því við fyrirtæki sem hefur verið byggt upp af alúð og framsýni í fjóra áratugi,“ útskýrir Hróðmar.

Ljósmynd: Brigitte Baumgartner
Eldhestar voru stofnaðir árið 1986 og hófu formlega starfsemi ári síðar. Félagið hefur aðsetur á Völlum í Ölfusi og sameinar hestaferðir, hótelrekstur og veitingaþjónustu. Boðið er upp á fjölbreyttar dagsferðir sem og margra daga alferðir, auk reiðnámskeiða, sýninga og alhliða kynningar á íslenska hestinum.
Hróðmar nefnir að tvö stór tímamót standi upp úr þegar litið er um öxl. Annars vegar hafi það markað þáttaskil þegar Eldhestar fengu Velli á leigu árið 1996, sem skapaði forsendur fyrir heilsársrekstri. Hins vegar hafi uppbygging Hótel Eldhesta, sem hófst árið 2001 og hóf starfsemi sumarið 2002, reynst mikið gæfuspor. Hótelið hefur síðan verið stækkað í áföngum. Hróðmar bendir á að hver fjárfesting hafi verið hluti af langtímasýn fremur en skammtímalausnum, byggð upp í takt við eftirspurn og með sjálfbærni að leiðarljósi. Hann tekur jafnframt fram að uppbyggingin hafi tekist vegna einstaklega góðs samstarfs hluthafa, stjórnenda og starfsfólks í gegnum áratugina.
Að mati Hróðmars liggur stærsti styrkur Eldhesta í samspili margra þátta. Hann nefnir samheldinn og reynslumikinn starfsmannahóp með mikla sérþekkingu, enda sé hann sérstaklega stoltur af því hversu margir hafi starfað hjá fyrirtækinu í áratugi. Þá á félagið um 230–240 hesta og segir hann hestakostinn einstaklega góðan, auk þess sem húsakostur og aðstaða séu til fyrirmyndar og að stórum hluta nýleg. Staðsetningin á Völlum sameinar svo nálægð við höfuðborgarsvæðið og einstaka náttúru Suðurlands.

Ljósmynd: Isabelle Büechse
Samþætting rekstrar og sóknarfæri framtíðarinnar
Samþætting hestaferða og hótelrekstrar hefur skapað mikla sérstöðu og samkeppnisforskot. Hróðmar útskýrir að svokallaðar hótelferðir, þar sem gestir dvelja á hótelinu og ríða út í dagsferðir um nærumhverfið og aðra þekkta staði, hafi vaxið hvað hraðast á síðustu árum. Samhliða því er hótelið opið öllum gestum, óháð hestaferðum, sem skapar fjölbreyttan tekjugrunn og minnkar rekstraráhættu. Eldhestar vinna með yfir hundrað erlendum ferðaskrifstofum en rúmlega helmingur bókana kemur beint í gegnum eigin vefsíðu. Gæða- og umhverfismál hafa ætíð verið í fyrirrúmi, en Eldhestar voru meðal annars fyrsti gististaður landsins til að hljóta Svaninn auk þess að uppfylla allar kröfur Vakans.
Fyrir væntanlega kaupendur eru tækifærin mörg. Fyrir liggur heimild til að stækka hótelið úr 53 herbergjum í um 100 herbergi og telur Hróðmar að sú stækkun muni veita tækifæri á enn frekari þróun og fjölgun hestaferða. Hann sér jafnframt mikil tækifæri í áframhaldandi uppbyggingu sérhæfðra gæðaferða fyrir smærri hópa, auk þess sem heimamarkaðurinn sé nánast ósnertur og bíði nýrra eigenda. Þá séu miklir möguleikar á að bjóða upp á ævintýra- og náttúruskoðunarferðir í næsta nágrenni, til að mynda við stórt fuglafriðland og strandlengjuna.
Traustur rekstur og ríkur menningararfur
Kaupandi fær í hendurnar stöðugan og rótgróinn rekstur, en Eldhestar hafa verið í flokki Framúrskarandi fyrirtækja frá 2014, ef frá er skilinn tími heimsfaraldursins. Vátryggingarverð fasteigna nemur rúmlega tveimur milljörðum króna. Eignirnar á Völlum standa á fimm hektara leigulóð í eigu ríkisins og telja alls 5.244 fermetra, þar á meðal hótel, reiðhöll, hesthús, gistihús og starfsmannahús. Í kaupunum felst einnig hestakosturinn, um 230–240 hestar, ásamt bílaflota og öllum nauðsynlegum búnaði sem styður við reksturinn.
Að lokum sendir Hróðmar hlý skilaboð til þeirra sem munu taka við keflinu: „Eldhestar hafa verið stór hluti af mínu lífi í áratugi. Ég vona að þeir sem taki við sjái ekki aðeins fyrirtæki heldur líka þann menningararf og þau gildi sem hafa verið byggð upp með starfsfólkinu og viðskiptavinunum. Mín ósk er fyrst og fremst sú að nýir eigendur haldi áfram að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið og leiði fyrirtækið inn í nýtt vaxtarskeið. Ég vona að þeir varðveiti þá hugmyndafræði sem hefur einkennt Eldhesta frá upphafi: fagmennsku, metnað, virðingu fyrir íslenska hestinum, góðan starfsanda og framúrskarandi þjónustu við gesti. Frá upphafi höfum við lagt meiri áherslu á gæði en magn – gert hlutina vel og byggt upp hægt en örugglega. Ég held að sú stefna hafi skilað okkur þangað sem við erum í dag.“

Ljósmynd: Brigitte Baumgartner
Margareterhof er selt
Fundaferð öryggisnefndar LH