Afkvæmi Draupnis og Spuna með hæsta meðaltal aðaleinkunnar í ár

  • 31. desember 2023
  • Fréttir

Draupnir frá Stuðlum

Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi árið 2023.

Í ár voru felldir 891 fullnaðardómar en alls komu 232 stóðhestar og 528 hryssur til fullnaðardóms á árinu. Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi.

Skýr frá Skálakoti átti flest sýnd afkvæmi á árinu en fimmtán stóðhestar voru með 10 eða fleiri sýnd afkvæmi á árinu og er listi með þeim hér fyrir neðan.

Af afkvæmum þessara fimmtán stóðhesta eru afkvæmi Spuna frá Vesturkoti og Draupnis frá Stuðlum með hæsta meðaltal aðaleinkunnar eða 8,19. Næst í röðinni eru afkvæmi Skýs frá Skálakoti og Hrings frá Gunnarsstöðum með 8,16 í meðaltal. Afkvæmi Hrings eru með hæsta meðaltalið fyrir aðaleinkunn án skeiðs eða 8,43. Síðan koma afkvæmi Draupnis með 8,35 og á eftir þeim eru afkvæmi Vita frá Kagaðarhóli með 8,32 í meðaltal fyrir aðaleinkunn án skeiðs.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá fimmtán feður sem áttu flest sýnd afkvæmi á Íslandi árið 2023.
Fjöldi
afkvæma
Meðal-
aldur
Ae. Ae. án
skeiðs
Spuni frá Vesturkoti

21

6.0

8.19

8.20

Draupnir frá Stuðlum

18

5.7

8.19

8.35

Skýr frá Skálakoti

37

5.8

8.16

8.28

Hringur frá Gunnarsstöðum

15

5.9

8.16

8.43

Konsert frá Hofi

23

6.3

8.15

8.23

Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum

16

5.1

8.14

8.26

Ölnir frá Akranesi

13

6.1

8.14

8.27

Trymbill frá Sóra-Ási

10

5.3

8.13

8.23

Þráinn frá Flagbjarnarholti

11

4.7

8.10

8.25

Hrannar frá Flugumýri

17

6.2

8.07

8.21

Viti frá Kagaðarhóli

15

5.9

8.07

8.32

Skaginn frá Skipaskaga

18

5.6

8.05

8.07

Óskasteinn frá Íbishóli

15

7.4

8.02

8.11

Arion frá Eystra-Fróðholti

14

6.1

7.99

8.14

Hreyfill frá Vorsabæ

10

6.1

7.92

8.16

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link