Verkefnið Horses of Iceland snýst um að koma íslenska hestinum á framfæri á fallegan og faglegan hátt
Kæra hestafólk.
Árið 2023 var viðburðarríkt hjá Horses of Iceland en verkefnið var sýnilegt á viðburðum og sýningum á Íslandi, í Þýskalandi, Hollandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Segja má að verkefnið sé tvískipt. Hér á Íslandi er það nýliðun sem við viljum styðja við ásamt því að verja pláss hestsins og hestamennskunnar í okkar samfélagi.
Erlendis er hesturinn okkar í samkeppni við ótal mörg önnur hestakyn og blendinga þegar kemur að því að velja sér hest og janfvel grein í hestaíþróttum. Í stuttu máli er hlutverk Horses of Iceland þar að fá fólk til að velja íslenskan hest umfram önnur hestakyn. Í ljósi umræðu um stærð og þyngdarhlutfalls milli knapa og hests um heim allan undanfarið er mikilvægara en nokkurn tímann áður að stunda öfluga markaðsetningu með íslenska hestinn og efla þá þekkingu sem við höfum, jafnframt því að afla að frekari og betri þekkingar á íslenska hestinum.
FEI (regnhlífarsamtök yfir ólympíugreinar tengdar hestum) tók up ‚RIDE‘ heimildarþátt í samstarfi við Horses of Iceland á Íslandi í haust. Verkefnið gaf einnig út nýtt myndband ásamt sýndarveruleikamyndbandi. Sýndarveruleikamyndbandið er svo vinsælt að raðir mynduðust á viðburðum þar sem við fengum tækifæri til að sýna það. Þar fær fólk tækifæri til að ríða um Rauðhóla á leirljósum hesti sem fer um á dúnmjúku tölti í hópi annarra knapa. Eins og venjan er vöktum við einnig mikla athygli á samfélagsmiðlum og á netinu sem er mjög góður markaðsvettvangur fyrir verkefnið.
Það eitt er víst að hesturinn okkar magnaði vekur óskipta athygli hvert sem farið er og íslenska hestamenningin einnig. Verkefnið Horses of Iceland snýst um að koma íslenska hestinum á framfæri á fallegan og faglegan hátt um allan heim og að upplýsingarnar um kynið sem berast út séu réttar, faglegar og settar fallega fram. Enda á íslenski hesturinn ekkert annað skilið!
Markaðsetninguna sem við hjá Horses of Iceland vinnum að er einungis hægt að stunda með samvinnu og að vera öll saman í lið og vil ég þakka okkar 28 samstarfsaðilum, þremur stofnaðilum, Íslandsstofu og matvælaráðuneytinu fyrir að gera okkur kleyft að vinna þessa vinnu.
Þá vil ég einnig bjóða ykkur öll velkomin til að gerast samstarfsaðilar á árinu. Því fleiri sem koma að verkefninu því öflugra verður það.
Árið 2024 verður afar viðburðaríkt. Árið hefst á nýrri innanhúsmótaröð í Þýskalandi þar sem Horses of Iceland er aðalstyrktaraðilinn. Mótaröðin ber nafnið Viking Masters en þar munu fullorðnir og ungmenni frá allri Evrópu keppa í liðum. Þá munum við aðstoða LH við skipulag á rafrænni menntaráðstefnu þar sem þemað er „Social Licence to Operate“ eða „félagslegt leyfi til ástundunar“. Meistaradeild Líflands og Horses of Iceland halda einnig áfram sínu samstarfi. Svo hlökkum við að sjálfsögðu til Landsmóts og margra annarra verkefna og viðburða, hérlendis sem erlendis sem eru nú til skoðunar og/eða í mótun.
Að lokum óska ég ykkur öllum gleðilegs nýs árs og hlakka til að halda áfram að vinna í þágu íslenska hestsins með og fyrir ykkur á nýju ári!
Berglind Margo Þorvaldsdóttir,
Verkefnastjóri Horses of Iceland
[email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Falleg orð duga ekki ein og sér