Tilraun um gæðinginn

  • 29. september 2026
  • Aðsend grein

Fjalladís frá Fornusöndum knapi: Elvar Þormarsson

Punktar sem í fyrstu voru hripaðir niður vegna hugmyndavinnu fyrir LH, urðu að þessum pistli

Það er ekkert áhlaupaverk að skilgreina orðið gæðingur, svo öllum líki. Hvað þá að búa svo um hnútana að skilgreiningin standist fræðilegar kröfur. Þetta helgast af því að gæðingur er gildishlaðið orð, sem ofan í kaupið vísar í allar áttir í upplifun og hughrifum þeirra sem gæðingskosta njóta. Ljóð og sögur eru því ef til vill heppilegri og að minnsta kosti algengari máti heldur en þurrar og fræðilegar skilgreiningar, þegar til kastanna kemur að orða það sem innra býr – og varðar þetta viðfangsefni.
Í stað þess að gefast strax upp á verkefninu, set hér að gamni tvo gamla húsganga, sem mér hafa verið tungutamir frá barnæsku.

Ég held´ann ríða úr hlaðinu best
sem harmar engir svæfa.
Hamingjan fylgir honum á hest
heldur í tauminn gæfa. J.A.

Vekur styrk og veitir frið
vonir rætast mínar
gegnum taum að tala við
tilfinningar þínar. Þ.G.

Horfnir góðhestar

Samspil manns og hests vekur hughrif sem speglast gjarnan í snjöllum hestavísum hagyrðinga og ljóðum þjóðskálda. Höfundar þessara ofanrituðu vísna eru Jón Arason Hólabiskup og Þorsteinn Guðmundsson, bóndi á Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Of langt mál yrði að vitna að ráði í stórskáld á borð við Pál Ólafsson, Stefán í Vallanesi, Einar Benediktsson, Guðmund Böðvarsson og Jóhannes úr Kötlum, svo aðeins fáir séu nefndir, og minni spámenn látnir liggja milli hluta. Allir þessir hafa ort meitluð og hrífandi kvæði um hesta.
Fyrri skilningur og álit margra eldri hestamanna var sá, að aðeins alhliða gengir og ganghreinir eðlisgæðingar verðskulduðu nafnbótina gæðingur. Þeir urðu sumsé að hafa getu til að geta skeiðað með tilþrifum, í viðbót við aðra sjálfsagða kosti. Til marks um þetta er gamla fyrirkomulagið: Annars vegar gæðingakeppni hinna fjölhæfu alhliða hesta, og hins vegar góðhestakeppni ,,klárhesta með tölti”. Þetta sjónarmið var ríkjandi lengst af á 20. öldinni. Að því kom að þessir flokkar voru nefndir A-flokkur og B-flokkur gæðinga, og trúlegt er að það sé tilkomið vegna þess að almenn sátt ríki nú um að þessar hestgerðir geti báðar verðskuldað sæmdarheitið gæðingur. Út frá því verður gengið í þessari umfjöllun.

Lærdómur frá upplýsingaöld

Í Klausturpóstinum frá árinu 1825 birtist grein eftir Magnús Stephensen landhöfðingja. Greinin er á margan hátt stórmerk og hægt er að draga lærdóm af henni – lærdóm sem greinir íslenska gæðinginn skilmerkilega frá öðrum hestakynjum. Á því er ekki vanþörf nú um stundir, þegar alls kyns ruglandi og grautarhugsun veður uppi – t.d. í heitum og afmörkun keppnisgreina, jafnt hér heima á Íslandi og úti í hinum stóra heimi.

Í grein þessari segir Magnús að ,,þýðgangur” íslenskra gæðinga greini þá á afgerandi hátt frá útlenskum hestakynjum, enda sé þeir ,,ómissandi á misjöfnum klungurvegum, einstigum um fjöll og hraun……………eru því hesta hentugastir í þessu harða og illa vegaða landi……..”
Og jafnframt: ,, …………… en oss léttast reiðir og bætist hinna jöfnuður (þ.e. samanburður við útlendu hestana sem hafa glæstara útlit) með góðhesta vorra þýða og lipra gangi”.

Í mínum huga leikur enginn vafi á því að ,,þýðgangur” og ,,þýður og lipur gangur” hljóti að vera tölt. Á þessum tíma er nefnilega ekki búið að finna upp orðið tölt, sem allur þorri hestamanna er nú sammála um að sé höfuðprýði íslenska gæðingsins.
Að þessu sögðu er ekki undan vikist að beina sjónum að verkefninu sem sett var fyrir.

Mýktartölt er meginkostur

Furðu vel gekk að ná saman um þá meginþætti, sem greina gæðing frá bykkju, svo notað sé orðalag Magnúsar landshöfðingja Stephensen. Eða, með öllu mildara orðalagi, hvaða eliskosti gæðingur þurfi að hafa til að bera, til að standa undir nafni. Við nefndarmenn vorum einhuga um að þessir þættir væru:
Traust lund – Mýktartölt – Fjölhæfni – Hreinn gangur – Snerpa – Flýtir.

Nokkrar umræður urðu um hvern skilning bæri að leggja í þriðja liðinn, fjölhæfni. Virtist nefndarfólk helst á því að ekki bæri að leggja strangasta skilning í hugtakið, þ.e. að fyrr mætti vera fjölhæfur en að búa yfir öllum fimm gangtegundunum, eins og alhliða hestar gera. Þannig yrði gerður nægilegur greinarmunur á orðunum alhliða og fjölhæfur, til þess að ætla megi að um þetta orðalag gæti orðið almenn sátt, fyrst hjá fulltrúum hestamannafélaganna á Landsþingi L.H. – og í framhaldinu hjá flestum hestamönnum.

Það kann að vera bjartsýni að halda að sú skilgreining sem kemur útúr þessari vinnu, gildi um aldur og ævi. Hins er þó að gæta, að hér hefur mögulega tekist að finna rauðan þráð um mýktargang og skaphöfn, sem dugar best þegar mest á reynir – hvort sem er á klungurvegum eða kjörbrautum. Rauðan þráð sem liggur allt aftur í aldir, og vísar jafnframt veginn til framtíðar!

Utan dagskrár

Fjörlegar umræður urðu í nefndinni utan dagskrár, annars vegar um gæðingaskeið og hins vegar um fyrirkomuleg töltdóma á kynbótasviðinu. Umræðurnar spunnust út frá viðfangsefninu, hugtökunum gæðingur og mýktargangur – og nauðsyn þess að halda til haga upphaflegum markmiðum þeirra ,,nýjunga” sem gæðingaskeið og hægatölt eru í keppnisflórunni. Fram komu sjónarmið sem ég sé fulla ástæðu til að hefja til vegs:
Í fyrsta lagi: Að brýna nauðsyn beri til þess að endurvekja það eina sanna gæðingaskeið, sem í fyrstu var lagt upp með: Að hefja það á tölti og ljúka því á tölti. Og fyrir alla muni: Að snarhætta að klossbremsa í lok spretts. Aðeins þannig getur keppnisgreinin staðið undir nafni, og orðið í anda þeirra forkólfa og hugmyndasmiða sem lögðu línurnar í upphafi.

Í öðru lagi: Að kominn sé tími til að í kynbótadómi fái sérstakt vægi einkunnin fyrir hægt tölt, fremur en að tengja einkunnagjöfina við tölteinkunnina með þröskuldum, eins og nú tíðkast. Aðeins þannig næst fram gegnsæi og fullur skilningur á einkunnagjöfinni.
Væri ekki verðugt að keppnis- og kynbótanefndir Landsþingsins fjalli og álykti um þessi síðastnefndu mál? Og í framhaldinu Fagráð í hrossarækt? Orð eru til alls fyrst.

Að lokum er rétt að leggja áherslu á að þessi skrif eru mín. Hér er alls ekki verið að tala fyrir nefndina. Hún mun skila sinni niðurstöðu, og leggja fyrir landsþingið.

Bjarni Þorkelsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link