Sýnikennsla með Jóhönnu Margréti
Jóhanna Margrét Snorradóttir, tvöfaldur heimsmeistari og þrefaldur Íslandsmeistari, verður með sýnikennslu á fimmtudaginn 11. janúar nk. í reiðhöllinni á Flúðum. Sýnikennslan hefst kl. 20:00 og kostar 2.000 kr. inn en frítt fyrir 12 ára og yngri.
„Jóhanna mun gefa okkur innsýn í það hvernig hún þjálfar sín hross og fara yfir sínar vinnuaðferðir. Láttu þig ekki vanta á þetta kvöld því að það er ekki á hverjum degi sem Heimsmeistari í Tölti mætir í Reiðhöllina á Flúðum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts