Fyrsta móti Viking Masters lokið
Fyrsta mót Viking Masters mótaraðarinnar fór fram um helgina í München í Þýskalandi. Mótinu lauk í dag en mótið var vel sótt af áhorfendum og var almenn ánægja með framkvæmd mótsins.
Irene Reber vann fjórgang V1 atvinnumanna á Kjalari von Hagenbuch með 7,33 í einkunn en hún vann líka tölt T1 í sama flokki á Kvist von Hagenbuch með 7,67 í einkunn. Thorsten Reisinger vann fimmgang F1 atvinnumanna á Hrímni frá Hrafnagili með 6,43 í einkunn. Vera Reber vann slaktaumatölt T2 atvinnumanna á Húna frá Blönduósi með 7,00 í einkunn.
HÉR er hægt að sjá niðurstöður frá mótinu en keppt var í þremur flokkum, atvinnu-, áhuga- og ungmenna.
Fjórgangur V1
1 Irene Reber Kjalar von Hagenbuch 7.33
2 Edvarda von Oppersdorff Erill frá Árbakka 6.93
3 Julia Lüschow Hvinur fra Fogedgaarden 6.50
4 Vera Weber Húni frá Blönduósi 6.30
5 Karolin Streule Viðar vom Wagrienhof 6.07
6 Thorsten Reisinger Ari frá Stóra-Hofi 1.40
Fimmgangur F1
1 Thorsten Reisinger Hrímnir frá Hrafnagili 6.43
2 Kai Anna Braun Flottur vom Lixhof 5.88
3 Vera Weber Hamur von Federath 5.21
Tölt T1
1 Irene Reber Kvistur von Hagenbuch 7.67
2 Thorsten Reisinger Álfur vom Pfaffenbuck II 7.28
3 Julia Lüschow Hvinur fra Fogedgaarden 6.78
4 Marina Schael Adonis vom Panoramahof 6.56
5 Willi Becker Varða frá Ármóti 6.44
6 Martin Heller Sjór frá Oddgeirshólum 6.28
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH