Leita eftir hrossum til leigu eða kaups fyrir kvikmyndavekefni
Framleiðslufyrirtækið RVK studios leitar eftir glæsilegum hestum til leigu eða kaups fyrir kvikmyndaverkefni í vor en hægt er að lesa meira um verkefni HÉR.
Í tilkynningu frá RVK studios segir að hestarnir þurfi að vera að lágmarki 145 cm á herðar, glæsilegir og faxprúðir. Þeir mega vera hvernig sem er á litinn en ekki skjóttir. „Hestarnir þurfa að vera tamdir og nokkuð þægir, ekki er krafa um fótaburð eða ganghæfileika en það er þó kostur. Hluti hestanna verður þjálfaður sérstaklega til að taka þátt í kvikmyndaatriðum þar sem þeim verður m.a. kennt að draga vagna sem og/eða ýmsa leikræna tilburði. Hestarnir skulu vera 8- 15 vetra.
Við erum á höttunum eftir fallegum, hraustum og geðgóðum hestum sem eru sannir fulltrúar íslenska hestsins. Við gerð þáttanna verður tryggt að allur aðbúnaður og atlæti hestanna verði eins og best verður á kosið. Öll áhersla er lögð á dýraverðferð og munu hestarnir vera undir eftirliti og umsjón fagaðila í öllu ferlinu hvort sem um ræðir flutning, þjálfun, leik eða hvíld.
Hestarnir verða mislengi í verkefninu eftir hlutverkum allt frá 6 vikum til 3 mánaða. Þeir þurfa að vera tilbúnir í verkefnið sem fyrst, þar sem þjálfun mun hefjast á allra næstu vikum. Ef þú ert með hest sem gæti hentað í þetta verkefni endilega sendu mynd/myndband og lýsingu á hestinum á netfangið [email protected].“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts