Kórskemmtun og ball í kvöld
„Minnum á árlega kórskemmtun og ball Gustskórsins í kvöld, lau. 16. mars í reiðhöll Gusts í Glaðheimum við Álalind í Kópavogi. Kórinn fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og verður starfinu í gegnum tíðina gerð skil í fjölbreyttri dagskrá. Á söngskránni verða gamlar perlur í bland við nýjar, einsöngslög, dúettar og kvartett. Stjórnandi kórsins er Atli Guðlaugsson.
Að tónleikum loknum spilar hljómsveitin Hvar er Mjallhvít? fyrir dansi fram eftir nóttu. Miðaverð er kr. 2.000 og eru miðar seldir við innganginn. Húsið opnar kl. 20.
Allir eru velkomnir á létt og skemmtilegt kvöld í Glaðheimum!“segir í tillkyninngu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH