Oddi til Hollands
Oddi og Skapti í ræktunarbússýningu Hafsteinsstaða á LM2016
Hans heimkynni eru nú í Hollandi hjá hinu þekkta hestafólki Henk Peterse og Patty Van der Kaaij sem hafa stundað hestamennsku í áratugi, ræktað hross, riðið og tamið auk þess að vera umfangsmiklir ljósmyndarar á öllum helstu viðburðum hestamennskunnar.

Oddi og Skapti Steinbjörnsson á Hafsteinsstöðum Ljósmynd: Henk Peterse
„Planið hjá okkur er að nota Odda á okkar hryssur auk þess að bjóða 1-2 vinum að nota hann en hann verður ekki til opinberrar notkunar. Við eigum ekki nógu mikið land til að taka á móti hryssum frá öðrum.“ Segir Henk, spurður að ástæðu kaupanna á Odda.
Sex vetra gamall kom Oddi fram í kynbótadómi, sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni, hlaut hann þá 8,0 fyrir sköpulag, 8,53 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja og geðslag í aðaleinkunn 8,32. Jakob keppti svo í framhaldinu á honum með góðum árangri auk þess að ræktandi hans, Skapti Steinbjörnsson, náði á honum góðun árangri og var t.d. í úrslitum í B-flokki á Fjórðungsmóti 2017 þar sem hann hlaut 8,99 í úrslitum.

Oddo og Patty Van der Kaaij. Ljósmynd: Henk Peterse
Henk er viss um það að Oddi muni reynast vel í ræktun. „Ég hef alltaf hrifist af hrossum frá Hafsteinsstöðum og Oddi hefur alltaf heillað mig á þeim Landsmótum sem ég hef séð hann, orkumikill og rúmur hestur með góðar gangtegundir. Hann mun án vafa passa vel á hryssurnar mínar“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH