Sex bú taka þátt

  • 30. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sýning ræktunarbúa í Herning.

Ræktunarbúsýning mun fara fram á föstudeginum á Heimsmeistaramótinu í Herning. Sex ræktunarbú hafa unnið sér þátttökurétt á sýningunni en ekki mega vera meira en átta hross í hverjum hópi og hefur hvert bú 6 mínútur til að sýna hrossin sín. Öll hrossin hafa verið valið vegna árangurs í keppni eða kynbótadómum. Það verður síðan í höndum áhorfenda að velja sigurvegara.

Ræktunarbúin sem verða með eru:

Efri – Rauðalækur (Ísland)
Knutshyttan (Svíþjóð)
Kringeland (Noregur)
Kronshof (Þýskaland)
Ny Nørregård (Danmörk)
Slippen (Danmörk)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link