Styttist í að Meistaradeild ungmenna og Top Reiter hefjist
„Spennan magnast og það styttist í fyrsta keppniskvöldið í Meistaradeild ungmenna og Top Reiter 2024 en það er föstudagskvöldið 2. febrúar og fer fram í Horse Day höllinni Ingólfshvoli í Ölfusi þar sem öll keppniskvöld deildarinnar fer fram keppnistímabilið 2024. Endilega takið kvöldin frá og mætið á svæðið til að styðja þessi flottu ungmenni sem eru stjörnur framtíðarinnar.“ segir í tilkynningu frá stjórn deildarinnar.
Keppniskvöldin verða fimm talsins eins og í fyrra og eru þau eftirfarandi:
Föstudagur 2.febrúar – fjórgangur V1
Föstudagur 16.febrúar – fimmgangur F1
Laugardagur 9.mars – Gæðingalist
Föstudagur 22.mars – slaktaumatölt T2
Laugardagur 6.apríl – Tölt T1 og skeið í gegnum höllina
Top Reiter er aðalstyrktaraðili Meistaradeild Ungmenna 2024 og þakkar stjórnin þeim kærlega fyrir stuðningin. Alendis mun streyma frá öllum keppniskvöldunum eins og undanfarin ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts