Steikarhlaðborð í HorseDay höllinni í kvöld
Framundan er fyrsta mót vetrarins en fjórgangur Meistaradeildar Líflands fer fram á fimmtudaginn þar sem spennandi hestar og knapar eru skráðir til leiks. Stjórn Meistaradeildarinnar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hestamenn eru hvattir til að mæta í HorseDay höllina í kvöld.
„Tekið verður vel á móti gestum af staðarhöldurum HorseDay Hallarinnar og verður hér á boðstólum dýrindis steikarhlaðborð matreitt af Veisluþjónustu Suðurlands. Það er spáð hæglætis veðri og má búast við góðri færð í Ölfusið. Það er því tilvalið að mæta í höllina og eiga frábæra kvöldstund, njóta hestakosts og samveru með öðrum hestamönnum.“
Bendum á að ef pantað er á steikarhlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti.
Pantanir á [email protected]
Bendum á að ef pantað er á steikarhlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti.
Pantanir á [email protected]
Steikarhlaðborð
- Hægeldað lambalæri og pönnusteikt svínasnitsel.
- Hvítlauks- og timian ristaðar karöflur, bakað rótargrænmeti, bernés- og brún sósa
- Sætkartöflusalat, döðlur og hnetur. Perlubyggsalat. Brokkolí- og trönuberjasalat og salat.
- og frátekið sæti á besta stað í stúkunni!
Verð 3.990kr.
Hamborgari, panini og léttar veitingar selt gestum og gangandi.
Fasteignasalarnir Gulla Jóna og Garðar Hólm bjóða öllum frítt í stúkuna.
Sjáumst á fimmtudaginn í HorseDay höllinni eða í beinni útsendingu á Alendis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts