Breyttar dagsetningar kynbótasýninga

  • 6. september 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Allmargar sýningar í júlí

Á fundi Fagráðs í hrossarækt fimmtudaginn 3. júní voru í mörgum tilfellum ákveðnar nýjar dagsetningar fyrir þær kynbótasýningar sem ráðgerðar eru á árinu. Breytingarnar eru tilkomnar vegna kvef pestar þeirrar sem nú herjar á hrossastofninn. Haldnir voru fjölmennir fundir á norður- og suðurlandi með fulltrúum búnaðarsambanda, hrossaræktendum og knöpum þar sem línur voru lagðar varðandi æskilegar tímasetningar sýninganna. Fleiri sýningar gætu komið til ef á þarf að halda.

Dagskráin er eftirfarandi með fyrirvara um breytingar vegna þátttöku:

Borgarfjörður  7. – 8. Júní
Hella   8. – 10. Júní
Hella   28. Júní – 2. Júlí
Reykjavík  28. Júní – 2. Júlí
Skagafjörður  28. Júní – 2. Júlí
Eyjafjörður  12. – 16. Júlí
Hella   26. – 30. Júlí
Skagafjörður  26. – 30. Júlí
Borgarfjörður  3. – 6. Ágúst
Hella   9. – 13. Ágúst
Hella   16. – 20. Ágúst
Blönduós  16. – 20. Ágúst

Nánari auglýsingar um einstakar sýningar munu birtast síðar.

Guðlaugur V. Antonsson
Hrossaræktarráðunautur BÍ.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link