„Alur stóð sig alveg frábærlega“
„Alur stóð sig alveg frábærlega, þó það sé alltaf einhvað sem má gera betur, þá er ég alveg rosalega ánægður með þetta. Að sigra fimmgangsúrslit er frábær árangur, þetta er ein erfiðasta greinin því þetta eru svo margir þættir sem þarf að vera í lagi og hann stóðst þær raunir allar vel,“ segir Jakob S. Sigurðsson tvöfaldur Íslandsmeistari en hann og Alur frá Lundum II sigruðu bæði fimmganginn og slaktaumatöltið. „Slaktaumatöltúrslit eru kannski léttustu úrslitin en þetta eru þrjú atriði og minna riðið í þeim úrslitum en öðrum svo ég held að hann hafi ekkert fundið fyrir því. Hann er í góðri þjálfun og góðu pústi svo hann hafði ekki mikið fyrir þessu.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH