Knapafundur fyrir keppendur og mótshaldara
Keppnisknapar, mótshaldarar, dómarar og aðrir sem að mótahaldinu í hestamennskunni koma eru boðnir velkomnir á knapafund ársins á vegum Landssambands hestamannafélaga.
Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 3. hæð, mánudaginn 12. febrúar klukkan 19:00, og verður einnig sendur út í streymi. Farið verður yfir reglur mótahaldsins sem gilda árið 2024, breytingar sem hafa átt sér stað, reglur fyrir Landsmótsúrtökur og ýmislegt gagnlegt tengt mótahaldinu.
Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn:
Dagskrá fundarins:
1. Mótahaldið almennt – (mótastjóri LH)
-
- Reglugerð um mótahald á Íslandi
- Skráningar
- Skýrslugerð mótshaldara
- Samskiptaleiðir við LH kringum mótahald
- Siðareglur LH
2. Breytingar á reglum eftir nýafstaðið FEIF þing – (fulltrúar Íslands í sportnefnd FEIF)
3. Framkvæmd kappreiða – (formaður HÍDÍ)
-
- 100m skeið
- 150m / 250m skeið
- Gæðingaskeið
4. Viðbragðsáætlun við slysum á mótsstað – (Öryggisinefnd LH)
5. Úrtökur fyrir Landsmót – (mótastjóri LH)
-
- Félagsaðild
- Einföld/tvöföld úrtaka
6. Landsmót 2024 –
7. Spjaldanotkun – (formaður keppnisnefndar)
-
- Hvað þýðir gult eða rautt spjald?
- Hvað er opinber áminning?
8. Leyfður búnaður í keppni –(mótastjóri LH)
9. Spurningar