Eyrún Ýr vann fimmganginn
Eyrún Ýr Pálsdóttir vann fimmganginn í Meistaradeildinni á Hrannari frá Flugumýri II en þau keppa fyrir lið Top Reiter. Þau Eyrún og Hrannar tóku forustuna strax eftir töltið. Héldu henni út öll úrslitin og enduðu langefst með 7,83 í einkunn.
Annar varð Sigurður Vignir Matthíasson á Hlekk frá Saurbæ með 7,36 í einkunn og þriðja varð Glódís Rún Sigurðardóttir á Snillingi frá Íbishóli með 7,31 í einkunn.
Það var lið Top Reiter sem hlaut liðaplattann en allir knaparnir úr liðinu voru í úrslitum, þau Eyrún Ýr, Teitur Árnason og Árni Björn Pálsson.
Staðan í liðakeppninni tók nokkrum breytingum. Lið Hestvit/Árbakka heldur enn efsta sætinu og náðu að auka aðeins á forskot sitt. Lið Ganghesta/Margrétarhofs færði sig upp í annað sæti og þriðja í röðinni er lið Hjarðartúns.
Glódís Rún tók forustuna í einstaklingskeppninni með 28 stig. Jakob Svavar fór niður í annað sætið með 22 stig og þriðja er Aðalheiður Anna með 17 stig.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins.
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II 7,83 Top Reiter
2 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ 7,36 Ganghestar/Margrétarhof
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli 7,31 Hestvit/Árbakki
4 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,29 Hrímnir/Hest.is
5 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II 7,19 Top Reiter
6 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A 7,14 Top Reiter
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,17 Hrímnir/Hest.is
2-3 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II 7,07 Top Reiter
2-3 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli 7,07 Hestvit/Árbakki
4 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ 7,03 Ganghestar/Margrétarhof
5 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A 6,93 Top Reiter
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II 6,83 Top Reiter
7 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 6,77 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
8 Ólafur Andri Guðmundsson Móeiður frá Feti 6,70 Austurkot/Pula
9-12 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 6,67 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
9-12 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi 6,67 Hjarðartún
9-12 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal 6,67 Ganghestar/Margrétarhof
9-12 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hringjari frá Efri-Fitjum 6,67 Hestvit/Árbakki
13 Jóhann Kristinn Ragnarsson Spyrnir frá Bárubæ 6,60 Austurkot/Pula
14 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi 6,57 Hrímnir/Hest.is
15-17 Sigurður Sigurðarson Mánadís frá Litla-Dal 6,50 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
15-17 Jakob Svavar Sigurðsson Gleði frá Hólaborg 6,50 Hjarðartún
15-17 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum 6,50 Hrímnir/Hest.is
18 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum 6,43 Hjarðartún
19 Pierre Sandsten Hoyos Heba frá Íbishóli 6,40 Hestvit/Árbakki
20 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti 6,13 Austurkot/Pula
21 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kamma frá Margrétarhofi 5,97 Ganghestar/Margrétarhof
22 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum 5,57 Uppboðsæti
Liðakeppni:
Hestvit/Árbakki 130,5
Ganghestar/Margrétarhof 118,5
Hjarðartún 116,5
Top Reiter 100
Hrímnir/Hest.is 93,5
Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 73
Austurkot/Pula 61
Einstaklingskeppni efstu fimm:
Glódís Rún Sigurðardóttir 28 stig
Jakob Svavar Sigurðsson 22 stig
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 17 stig
Ásmundur Ernir Snorrason 15 stig
Eyrún Ýr Pálsdóttir 12 stig
Eyrún Ýr vann fimmganginn
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur