„Þegar við stöndum saman gerum við ansi stóra hluti“
Í gær var alþjóðlegur dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni. Félagið nýtti daginn til vitundarvakningar í samfélaginu með yfirskriftinni Glitraðu með einstökum börnum.
Elísabet Sveinsdóttir hvatti hesta menn til að taka þátt í þessum degi með einstökum börnum og hafði m.a. samband við knapa Meistaradeildarinnar og hvatti þá til að mæta glitrandi í keppni í fimmgangi í gærkvöldi sem þeir gerðu.
Viðtal við Elísabetu geturðu horft á í spilaranum hér fyrir neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH