1. deildin í hestaíþróttum Arnhildur vann gæðingalistina í 1. deildinni

  • 7. mars 2024
  • Fréttir
Niðurstöður frá öðru móti 1. deildarinnar í hestaíþróttum.

Þá er keppni lokið í gæðingalist í 1. deildinni. Margir voru að stíga sín fyrstu skref í þessari grein og áttu margir góðar sýningar.

Bestu sýningu kvöldsins áttu þær Arnhildur Helgadóttir og Vala frá Hjarðartúni en þær hlutu 7,87 í einkunn sem tryggði þeim efsta sætið. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Flaumur frá Fákshólum enduðu í öðru sæti með 7,60 í einkunn og í því þriðja varð Birna Oliva Ödkvist og Kór frá Skálakoti með 6,97 í einkunn.

Guðmunda, Arnhildur og Birna Mynd: 1. deildin

Efsta liðið í kvöld var lið Vindás / Stóðhestavals en liðið heldur sér í þriðja sæti með 103 stig. Efst í liðakeppninni eftir tvö mót er lið Heimahaga með 110.5 stig og í öðru Sportfákar með 104.5 stig.

Guðmunda Ellen nældi sér í nokkur aukastig í kvöld og trónir nú á toppi einstaklingskeppninnar með 20 stig. Á eftir henni er Hákon Dan Ólafsson með 15,5 stig og þriðja er Arnhildur með 12,5 stig. Staðan í einstaklings- og liðakeppninni er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Arnhildur og Vala frá Hjarðartúni, sigurvegarar kvöldsins. Mynd: 1. deildin

 

Niðurstöður úr gæðingalistinni

1. Arnhildur Helgadóttir Vala frá Hjarðartúni Sportfákar 7,87
2. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum Heimahagi 7,60
3. Birna Oliva Ödkvist Kór frá Skálakoti Vindás/stóðhestaval 6,97
4. Kári Steinsson Sigð frá Syðri-Gegnishólum Hringdu 6,93
5. Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi  Sportfákar 6,80
6.-7. Haukur Bjarnason Ísar frá Skáney Kidka/hestakofi 6,77
6.-7. Hákon Dan Ólafsson Geisli frá Gafli Heimahagi 6,77
8. Anna Valdimarsdóttir  Ólsen frá Egilsá  Horseday 6,73
9. Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Stjörnublikk 6,67
10.-11. Elvar Logi Teningur Kidka/hestakofi 6,63
10.-11. Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli Vindás/stóðhestaval 6,63
12.-13. Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum Stjörnublikk 6,53
12.-13. Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Vindás/stóðhestaval 6,53
14.-16. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir  Straumur frá Hríshóli Hringdu 6,23
14.-16. Sigríður Pjetursdóttir Flygill frá Sólvangi Laxárholt mýrdalur 6,23
14.-16. Reynir Örn Pálmason Fjalar frá Margrétarhofi  Hringdu 6,23
17.-18. Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum Horseday 6,17
17.-18. Sigurður Halldórsson  Gustur frá Efri-Þverá  Stjörnublikk 6,17
19. Ríkharður Flemming Jensen Garri frá Bessastöðum Heimahagi 6,03
20. Telma Lucinda Tómasson Forni frá Flagbjarnarholti Horseday 6,0
21. Anna Björk Ólafsdóttir Taktur frá Hrísdal  Sportfákar 5,70
22. Eysteinn Tjörvi Greifi frá Söðulshölti Kidka/hestakofi 5,60
23. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Blakkur frá Traðarholti Laxárholt mýrdalur 5,50
24. Tinna Rut Jónsdóttir Forysta frá láxárholti Laxárholt mýrdalur 5,47

Liðakeppni
Heimahagi 110.5
Sportfákar 104,5
Vindás / Stóðhestaval 103
Horseday 69
Hringdu 60.5
Kidka / Hestakofi 55.5
Stjörnublikk 49
Laxárholt / Mýrdalur 48
Einstaklingskeppni
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir 20
Snorri Dal 14
Arnhildur Helgadóttir 12.5
Vilborg Smáradóttir 12
Birna Olivia Ödkvist 12 stig
Hákon Dan Ólafsson 11.5
Kári Steinsson 7
Anna Björk Ólafsdóttir 6
Haukur Bjarnason 5
Gunnhildur Sveinbjarnardóttir 5
Eyjólfur Þorsteinsson 3
Anna Valdimarsdóttir 3
Haukur Tryggvason 2
Katrín Sigurðardóttir 2
Elvar Logi 0,5
Hermann Arason 0,5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link