Folaldasýning Sörla á laugardaginn
Folaldasýning Sörla verður haldin á Sörlastöðum laugardaginn 16.mars.
Folaldasýningin er opin öllum og skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected]. Við skráningu þarf að koma fram nafn folalds, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráningargjald er 3500 kr, millifært á reikning 0545-26-3615, senda þarf kvittun á [email protected] með nafni folalds sem skýringu. Skráningu lýkur í dag, fimmtudag kl 12:00 (á hádegi).
Folatollauppboðið verður ekki af verri endanum en er verið að kynna þá stóðhesta sem eru í boði á heimasíðu Sörla. Í hópnum eru m.a. Vísir frá Kagðarhóli, Húni frá Ragnheiðarstöðum, Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum, Örvar frá Gljúfri, Straumur frá Hríshóli 1, Seiður frá Hólum og Glampi frá Skeiðháholti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts