Sundriðið í Sauðárkrókshöfn-
„Atriði í kvikmyndinni Hross var tekið upp í Sauðárkrókshöfn í morgun en þar sundríður maður út í rússneskan togara til að ná sér brennivín. Sundið út í togarann gekk vel hjá hesti og manni en þegar átti að snúa við fór ekki alveg eins og ritað var í handritið. Hesturinn féll af sérsmíðuðum palli sem hékk utan á skipinu og knapinn skutlaði sér á eftir honum en saman fóru þeir í land heilir og höldnu en hrakblautir og kaldir.
Myndbandið hér til hliðar sýnir sundferðina.“
Fréttin er tekin af www.feyki.is.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV