Likely honor prize winning mares
The mothers of known breeding mares and multiple winning gæðingar are amongst those who receive a honor prize award for offspring this year. The prize winnings go to mares with a 116 points or more in BLUP and have at least 5 offspring. And the one with the highest total score receives the Gletta trophy.
The last update on BLUP for the year 2012 will be made this week and therefore it will become known at the end of this week which mares are amongs the honor winning prize this year.
Here are the names of the mares which currently fulfill the minimum scores but please note that this list is published with a notice of changes which might appear after a new calculation of the BLUP this week.
Þoka frá Hólum stendur efst með 126 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Hún er undan Vafa frá Kýrholti og Þrá frá Hólum. Dæmd afkvæmi Þoku eru Þóra (ae. 8,77), Þeyr (ae. 8,46), Þilja (ae. 8,17), Þrönn (ae. 8,31) og Þota (ae. 7,90). Ræktandi Þoku er Hólaskóli en eigendur eru Inga og Ingar Jensen.
Gleði frá Prestsbakka er með 122 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Gleði er undan Þorra frá Þúfu og Gyðju frá Gerðum. Dæmd afkvæmi hennar eru Víðir frá Prestsbakka (ae. 8,34), Ísak frá Margrétarhofi (ae. 7,94), Gola frá Prestsbakka (ae. 8,21), Gustur frá Margrétarhofi (ae. 7,71) og Glóð frá Prestsbakka (ae. 8,19). Ræktendur Gleði eru þeir Ólafur Oddsson og Jón Jónsson sem eru eigendur hennar ásamt Margrétarhofi ehf.
Sóldögg frá Hvoli er með 120 stig í kynbótadómi en hún undan Goða frá Prestsbakka og Eldingu frá Víðidal. Dæmd afkvæmi hennar eru Mist (ae. 8,20), Myrkvi (ae. 8,14), Máni (ae. 8,02), Dökkvi (7,89) og Dimma (7,91) öll kennd við Hvol í Ölfusi. Ræktandi og eigandi Sóldaggar er Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir.
Pyttla frá Flekkudal er með 119 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Hún er undan Adami frá Meðalfelli og Drottningu frá Stóra-Hofi. Dæmd afkvæmi eru: Æsa frá Flekkudal (ae. 8,54), Frægur frá Flekkudal (ae. 8,04), Glymur frá Flekkudal (ae. 8,52), Þyrnirós frá Þjóðólfshaga 1 (ae. 8,33), Sólbjartur frá Flekkudal (ae. 8,29) og Tálbeita frá Flekkudal (ae. 7,80). Kristján Mikaelsson ræktaði Pyttlu en núverandi eigendur hennar eru Guðný Ívarsdóttir og Sigurður Sigurðarson.
Ballerína frá Grafarkoti undan Baldri frá Bakka og Kímni frá Grafarkoti stendur með 118 stig í aðaleinkunn kynbótamats og sex dæmd afkvæmi. Þau eru: Birta (8,03), Brimrún (8,17), Brimkló (8,17), Barón (7,72), Bassi (8,15) og Brennir (8,01) öll kennd við Efri-Fitjar í V-Húnavatnssýslu. Ræktandi Ballerínu er Herdís Einarsdóttir en eigendur hennar eru Gréta Brimrún Karlsdóttir og Gunnar Þorgeirsson á Efri-Fitjum.
Framkvæmd frá Ketilsstöðum undan Hrafni frá Holtsmúla og Hugmynd frá Ketilsstöðum stendur með 117 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Dæmd afkvæmi hennar eru Minning (8,25), Djörfung (8,23), Flugnir (8,38), Flaumur (8,02) og Frami (8,03). Ræktandi og eigandi Framkvæmdar er Bergur Jónsson.
Ambátt frá Kanastöðum undan Hrannari frá Kýrholti og Öskju frá Miðsitju er einnig með 117 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Dæmd afkvæmi Ambáttar eru Brák (ae. 8,24), Brúður (ae. 7,88), Brynglóð (ae. 8,18), Bringa (ae. 7,81) og Brigða (ae. 8,08) öll kennd við Brautarholt. Ræktandi og eigandi Ambáttar er Snorri Kristjánsson.
Kvika frá Akranesi undan Kveik frá Miðsitju og Rakel frá Akranesi er með 116 stig í aðaleinkunn kynbótadóms og hafa fimm afkvæmi hennar hlotið dóm. Þau eru Bylgja (ae. 8,28), Skynjun (ae. 8,29), Grandi (8,48), Glitnir (7,96) og Formúla (8,07) öll kennd við Skipaskaga. Eigandi og ræktandi Kviku er Jón Árnason.
Storka frá Dalbæ undan Kveik frá Miðsitju og Sjöfn frá Dalbæ er einnig með 116 stig í aðaleinkunn kynbótamats nú þegar sex afkvæmi hennar hafa hlotið kynbótadóm. Þau eru Gróska (ae. 8,19), Græðir (ae. 8,24), Glæða (ae. 7,97), Gátt (ae. 8,22), Ganti (ae. 8,04) og Gáll (ae. 7,87). Eigandi og ræktandi Storku er Már Ólafsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH