Frestað vegna veðurs
Mótstjórn hefur ákveðið að fresta milliriðlum B-flokks til morguns, vegna slæms veðurútlits. Milliriðillinn, sem átti að fara fram núna kl. 18, fer þess í stað fram kl. 18 á morgun, miðvikudaginn 2. júlí. Skeiðgreinar sem áttu að fara fram kl. 18.30 á morgun, hafa verið færðar til kl. 19.30, eða eins og segir í tilkynningu:
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta milliriðlum í B-Flokk sem átti að hefjast kl 18 í dag 1.7.2014 til morgundags 2.7.2014 kl 17:00. Skeið sem auglýst var að ætti að hefjast 19:30 2.7.2014 færist til 20:30 2.7.2014. Þessi ákvörðun er tekin vegna slæms veðurútlits fyrir kvöldið og hugsanlegra slæmra vallaraðstæðna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH