Skráning hafin á opið gæðingamót Dreyra
Opið gæðingamót Dreyra verður haldið laugardaginn 18. maí í Æðaroddi.
Boðið verður upp á það að fá umsagnir frá dómurum og er þetta því frábært tækifæri til að æfa sig fyrir Landsmót.
Flokkar sem verða í boði:
- A-Flokkur
- A-Flokkur ungmenna
- B-Flokkur
- B-Flokkur ungmenna
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Gæðingatölt fullorðinsflokkur
- Gæðingatölt ungmenna
Þátttökugjald er 5.000kr fyrir fullorðinsflokk og ungmenni og 4.000kr fyrir unglinga og börn. Skráning fer fram á sportfengur.com til 16.maí kl 23.59